Ekkert síður stórmót lyfjafræðinga lækna og veirusérfræðinga en íþróttamanna.

Sífellt bætast fleiri og fleiri sérfræðingar inn í þann hóp, sem áður var aðeins skipaður íþróttafólki. 

Síðustu áratugina hafa öll lyfjaprófin og vandræðin í sambandi við þau verið svo ofarlega á baugi á baugi í kringum öll þessi herlegheit, að nefnt var í hálfkæringi að leyfa viðkomandi lyfjafræðingum að standa á verðlaunapöllunum hjá þeim sem höfðu komust lengst í því að spila með lyfjamælingakerfið. 

Nú hafa veirusérfræðingar bæst í hóp þeirra sem eru að skapa þá atburðarás sem birtist í sendingu leikmanna úr og í leiki sitt á hvað.  


mbl.is Hvenær losna okkar menn úr einangrun?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Shönbach knúinn til að segja af sér vegna raunsæislegra ummæla.

Rússar fórnuðu tugþúsundum hermanna í Krímstríðinu um miðja 19. öld og milljónum hermanna í Seinni heimsstyrjöldina í hernaðinum vegna yfirráða á þessum mikilvæga skaga við norðanvert Svartahaf. 

Á fyrri hluta sjöunda áratugarins förlaðist Nikita Krústjoff mjög tökin á stjórn Sovétríkjanna, vanmat stjórnvisku og staðfestu Kennedys í Kúbudeilunni, stóð fyrir hrikalegum umhverfismistökum í landbúnaðar- og stórframkvæmdum og sýndi mikla skammsýni þegar hann hreinlega "gaf" Úkraínumönnum Krímskagann til að efla samstöðu Sovétlýðveldanna. 

Þegar vesturveldin stefndu leynt og ljóst að því að kippa Úkraínu inn í ESB og NATÓ var Pútín nóg boðið og hernam Krímskagann auk þess að standa að baki uppreisn á hinu auðlindaríka Donbass svæði í austurhluta Úkraínu. 

Af þeim ummælum, sem Schönbach aðmíráll er nú snupraður fyrir eru ummælin um Krímskagann hins vegar aðeins raunsæ og eðlileg í ljósi sögunnar. 

Það er fullkomlega óraunsætt að ætla að Rússar muni gefa frá sér Krímskagann í annað sinn. 

Sú tilfærsla Krústjoffs fól í sér mistök og verða ekki endurtekin. 


mbl.is Segir af sér vegna ummæla um Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt landnám í viðskiptum við Bandaríkin?

Sú var tíðin á tímum Coldwater og Loftleiða, að Bandaríkin voru jafn stór hluti af viðskiptum okkar og Evrópa. 

Síðan kom EES og einnig voru hvalveiðar Íslendinga ekki vel séðar hjá mörgum á Bandríkjaþingi. 

Síðuhafi gantaðist með það í byrjun forsetatíðar Trumps að maður með millinafnið Þorfinnur og faðir sonar sem héti Þorfinnur, ætti ekki mikla möguleika á að komast inn í Bandaríkin úr því að faðir fyrsta mannsins af evrópskum uppruna, sem fæddist í Ameríku hefði heitið Þorfinnur og komist ólöglega án skilríkja inn í guðs eigið land fyrir þúsund árum.  

Ísland er það Evrópuland, sem er styst frá Bandaríkjunum og að ýmsu leyti á þægilegum stað milli Evrópu og Ameríku.  

Það er fyrir löngu kominn tími til að nýir útrásarvíkingar, reynslunni ríkarai eftir bankahrunið 2008, hasli sér völl í Vesturheimi og fái til þess stuðning hjá þarlendu áhrifafólki. 


mbl.is Frumvarp um Ísland lagt fram á Bandaríkjaþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. janúar 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband