"Eðlilega reglan", án sóttvarna, er hálfur metri.

Þegar rætt er um fjarlægðarreglur er rétt að hafa í huga, hve mikil nálægðin getur verið ef engar sóttvarnir eru; "eðlilega reglan."

Hún er einföld og gildir í sætisröðum þar sem hver sitjandi gestur hefur hálfs metra rými í hverju sæti.  

Í reglum um bíla er gert ráð fyrir því að breiddin fyrir hvern sitjandi mann í aftursæti sé ekki minni en 0,43 metrar, sem þýðir að þrír fást skráðir í aftursæti, ef það er minnst 1,29 metrar á breidd. 

Svipað gildir um sæti í flugvélum,  

Uppgefin fjarlægð í áttina fram-aftur, ("pitch") í flugélum er aðeins mismunandi, en 32 tommur, 80 sm, er algeng tala.  

Af þessu leiðir, að eins metra fjarlægðarregla fækkar sitjandi fólki um um það bil helming, þannig að í 400 sæta sal geta aðeins 200 setið. 


mbl.is Tónleikahald „fyrirfram dauðadæmt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný hugsun: Helmingaskipti.

Fyrir um áratug kom fram nýstárleg hugsun í olíuvinnslumálum jarðrbúa, sem fólst í því að vegna þess að olían væri óendurnýjanleg orkulind væri það ósanngjarnt gagnvart komandi kynslóðum að ein kynslóð gini yfir öllum olíulindunum, sem eftir væru. 

Sett var fram hugsunin um það að því, sem eftir lifði af olíulindum jarðar, skildi skipt á milli núlifandi kynslóða og hinna sem á eftir kæmu, eins konar helmingaskipti. 

Á landsfundi Samfylkingarinnar var hart tekist á um olíustefnu Íslands að afloknum viðamiklum málstefnum og heimildavinnu um málið, en olíusinnar biðu lægri hlut, og Vinstri grænir fylgdu síðan á eftir. 

Áður hafði Össur Skarphéðinsson haft það í flimtingum að hann væri olíumálaráðherra Íslands. 

Þrátt fyrir þetta var staðið að samningum um leit og vinnslu olíu á Drekasvæðinu, en nú hefur það endanlega verið slegið út af borðinu. 

Norðmenn eru nú komnir á eftir okkur hvað varðar áframhald olíuvinnslu og hugsunin um að skipta olíuauði jarðar með jafnrétti núverandi og komandi kynslóða í huga vinnur á. 


mbl.is Engin olíuleitarleyfi verða veitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. janúar 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband