1973: "Vestmannaeyjar skulu rísa!".

Þegar útlitið var svartast fyrir Vestmannaeyinga í gosinu 1973 var haldinn eftirminnilegur umræðufundur í sjónvarpinu um málið. 

Meðal þátttakenda var Ólafur Jóhannesson, þáverandi forsætisráðherra og hafði sig ekki mikið í frammi lengi vel meðan aðrir þátttakendur fóru  mikinn í bollaleggingum um nýja og stóra höfn i Mýrdal þar sem einnig gæti risið byggð fyrir íbúana.

Það yrði hugsanlega eina leiðin til þess að tryggja hafnaraðstöðu á Suðurlandi með útgerð og margvíslegum umbótum, iðnaði og þjónustu, sem slíkri höfn fylgdi. 

Þegar þessi umræða stóð hvað hæst kom að því að spyrja forsætisráðherr álits. 

Þá brá svo við að Ólafur rétti úr sér og sagði með svo mkilum mydduleika, að málið var ekki rætt frekar. "Vestmannaeyjar skulu rísa!" 


mbl.is Athuga möguleika á hafnargerð í Mýrdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. apríl 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband