40 km á hjóli eru meira en "nokkrir kílómetrar." Reiðhjólabann í göngum sjálfsagt.

Það sýnir annað hvort furðulega fáfræði eða hroka og skilningsleysi, nema hvort tveggja sé, að hafa þá skoðun á því að þurfa að fara 40 aukakílómetra fyrir Hvalfjörð vegna banns við notkun reiðhjóla í Hvalfjarðargöngunum að aðeins sé um að ræða örfáa kílómetra. .Sörli, rafhjól 

Bannið er sýnt á skilti við báða enda ganganna, enda ekki um annað að ræða vegna þess hve mjó göngin eru og hjólin fara miklu hægar en bílarnir. 

Ekki er bannað að fara á léttbifhjólum um göngin, sem falla undir ökutæki á vegum og götum í vega- og gatnakerfi landsins og búa yfir nægum hraða til að fylgja umferðarhraða upp á 70 km á klst.

Síðuhafi hefur margsinnis farið á slíkum hjólum um göngin vandræðalaust.Náttfari við Engimýri

En í það eina skipti, sem farið var á rafknúna reiðhjólinu Sörla, í ágúst 2016, var að sjálfsögðu farið umyrðalaust fyrir Hvalfjörðinn, þótt þar væri bæði mikill mótvindur og hið versta veður við Þyril, svo að sjórinn í Botnsvoginum skrúfaðist upp í hvirfla og kostaði stopp í nokkur skipti meðan bíða þurfti áhlaup sjávarins af sér. 

Þetta var langerfiðasti kafli ferðarinnar milli Akureyrar og Reykjavíkur og hefur þessi 40 km langi "spotti" sennilega lengt ferðalagið um minnst sex klukkustundir.   


mbl.is Stöðvaður á reiðhjóli í Hvalfjarðargöngunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að horfa til framtíðar við að fylla upp í stóru eyðurnar.

Þegar litið er á korti yfir byggðamynstur höfuðborgarsvæðisins sjást óbyggðar eyður á milli byggðahlutanna, svo sem Keldnaland og Blikastaðaland, sem henta vel til uppbyggingar ef horft er til framtíðar. 

Fram að þessu hefur sýn þeirra, sem vilja þétta byggð, verið þrungin skammsýni að því leyti, að horft hefur verið um of á tiltölulega lítil svæði nálægt hinum gamla miðhluta borgarinnar í stað þess að horfa lengra fram í tímann og nýta tilkomu borgarlínu í einhverri mynd. 


mbl.is Hefja uppbyggingu á stærsta óbyggða landsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. ágúst 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband