Athyglisverð viðtvöl við Pál Einarsson og Ara Trausta Guðmundsson.

Viðtvöl við jarðeðlisfræðingana Pál Einarsson og Ara Trausta Guðmundsson í dag eru einkar upplýsandi. Páll var einn þeirra vísindamanna, sem fylgdist einna gleggst með Kröflueldunum, sem oft hefur verið vitnað til á þessari bloggssíðu. 

Lárétt hlaup kviku eftir kvikugöngum koma oft við sögu á þeim flekaskilum, sem eru orsök og eðli hins eldvirka hluta Íslands, og nefnir Páll 48 kílómetra færslu kvikunnar í Holuhrauni sem dæmi, en þar lagði megin eldstöðin Bárðarbunga til hraunstrauminn. 

Raunar eru til eldri dæmi um svipað af hendi Bárðarbungu fyrr á öldum, allt suðvestur til Friðlands að Fjallabaki.

Fróðlegt gæti verið að rannsaka betur áhrif hinna stóru gufuaflsvirkjana á Reykjanesskaga á háhitasvæðin þar, en margir náttúruverndarmenn nefndu fyrirhuguðu virkjanirnar á skaganum "ruslakistu Rammaáætlunar" á sínum tíma og það ekki að ósekju.      

 


mbl.is Nýjar myndir sýna breytingar: Háhitasvæðið stækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. nóvember 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband