17.6.2023 | 21:49
Of hægfara bílar valda oft slysahættu.
Á þjóðvegum landsins veldur það oft vandræðum og jafnvel slysahættu hve margir ökumenn ýmist aka langt neðan við leyfðan hraða eða aka rykjótt hvað hraðann snertir.
Bíll á 50 km hraða í göngum, sem er með eina akrein í hvora átt, getur valdið því að bilið á milli hans og næsta bíls á eftir getur minnkað snarlega niður fyrir 50 metrana, sem krafisst er.
Annað furðufyrirbæri er það að sjá bílstjóra hægja stórlega á sér þegar ekið er undan brekku á beinum vegi rétt eins og um stórhættulegan bratta sé að ræða.
Minnst 50 metrar skulu vera milli bíla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2023 | 14:40
"Tryggir hvíla rónar hjá galtómum bokkunum..." þótti óviðeigandi 2007.
Þegar "Villi, gamli góði Villi" var orðinn borgarstjóri 2006 kom borgartjóri Moskvuborgar hingað í heimsókn og færði íslenkum kollega sínum tónlistarmyndband að gjðf að því er sagnir herma.
Villi varð hrifinn og setti í gang gerð svipaðs tónlistarmyndbands um Reykjavík.
Gunnar Þórðarson var fenginn til að hrinda gerð tónlistarmyndbandsins og samdi hann lag og fékk síðuhafa til að sjá um texta og útfærslu á myndatöku. Þetta var á hápunkti bankabólunnar miklu og talað um myndarlegt framlag bankanna.
Í fyrstu datt mönnum helst í hug að nota lagið Vorkvöld í Reykjavík, en sagt var að Jónas Jónasson, sem leitað var til um ráðgjöf hefði ráðlagt eindregið að gera ekki myndband með áhrifamikilli myndskreytingu á setningunum "...hljótt er kringum Ingólf og tæmt þar hvert tár, / tryggir hvíla rónar hjá galtómum bokkunum..."!
Við Gunnar töldum að reyna ætti í fjögurra mínutna lagi að lýsa sem ítarlegast öllum atriðum í borginni og mannlifi þar frá landnámi auk náttúru og kennileita.
Þegar gerð myndbandsins "Reykjavíkurljóð" var lokið og það var afhent stóð á endum að bankarnir voru komnir á hausinn og fimm borgarstjórar komnir og farnir og aðeins einn þeirra gat lagt eitthvað smávegis til málsins, 350 þúsund krónur upp í kostnað við stórhljómsveit og kvartettinn "Borgarbörn"!
Þótti ekki við hæfi að börn myndu syngja um áfengi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)