Fróðleg skýrsla um skipulag 16 borga á Norðurlöndunum.

Þórarinn Hjaltason minntist í nýlegri Morgunblaðsgrein á það að hann hefði kynnt sér skipulag tuga borga í Ameríku til að átta sig á samanburði á þeim við Reykjavík. DSC00739 

Í því sambandi má nefna, að til er afar vönduð norræn skýrsla þar sem Reykjavík er borin saman við sextán borgir á Norðurlöndum og er niðurstaðan áhugaverð:

Tíu þessara borga eru álíka stórar og Reykjavík og allar þessar tíu eru álíka dreifbýlar, gagnstætt því sem haldið hefur verið fram hér á landi í áratugi. 

Sex af borgunum sextán eru talsvert stærri en Reykjavík og mun þéttbýlli. 

Skýrslan var unnin á vegum NORDSTAT, Samtökum norrænna borga. 

Það væri verðugt verkefni að skoða, hvort og þá hvaða breytingar hafa orðið á þeim á þeim aldarfjórðungi, sem liðinn er síðan skýrslan var gerð.DSC00740

Gæti kannski orðið að eitthverju gagni að kynna sér hvað það fólk, sem lifir erlendis við líkastar aðtsæður og eru hér á landi, hefur gert síðustu áratugina í þessum málum? 


Fróðleg skýrsla um skipulag norrænna borga.

Þórarinn Hjaltason greinir frá því í Morgunblaðsgrein að hann hafi kynnt sér skipulag tuga borga í Ameríku og það hafi hreyft við skoðunum hans á skipulagsmálum. 

Hér skal því bætt við, að hjá Samtökum norrænna borg var unnin afar merk og skýr skýrsla um skipulag sextán borga á Norðurlöndum. 

Sex þessarar borga eru mun stærri en Reykjavík en níu borgi álíka stórar. 

Niðurstaða skýrslunnar stangast hressilega á þá fullyrðingu að Reykjavík, hvort sem það er borgin sjálf eða höfuðborgarsvæðið í heild, skeri sig alvarlega úr hvað snertir dreifingu byggðar hjá erlendum borgum. 

Þvert á móti er Reykjavík álíka dreifð og borgir á Norðurlöndum, sem eru álíka stórar, en þær eru níu í skýrslunni. 

Á hinn bóginn eru stóru norrænu borgirnar sex, sem eru í skýrslunni allar þéttbýlli. 

Skýrslan, sem var gerð fyrir aldarfjórðungi, sýnir að vísu aldarfjórðungs gamla mynd af, en það gæti kannski gert það nytsamlegt að kanna, hvort og þá hvað hafi breyst síðan um síðustu aldamót. DSC00740 


mbl.is Vond lykt eftir verktaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. maí 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband