Tveir óstöðvandi ræðumenn gerðu atlögu að hápunktinum í París.

Í sögu Ólympíuleikanna eru varðveitt afar sterk augnablík af því þegar Ólympíueldinum er í lokin fyrir á toppi súlu, sem tákn um að leikarnir séu settir.  Dæmi um þetta var augnablikið þegar Muhammed Ali fékk þetta verkefni. 

Í kvöld vildi svo til að líklega var um að ræða flottasta tendrun eldsins og í ofanálag dásamlegur flutningur Celine Dion á snilldarverki Edit Piaf.  

En því miður gerðist það versta, sem gat gerst, að tveir ræðumenn jusu fyrst úr skálum langhunda ræðublaðurs þar sem þeir fóru aftur og aftur með sömu tugguna þegar hægt hefði verið stroka út megnið að þessu blaðri.  

Dagskrá sjónvarpsins var greinilega fyrirfram áætluð á þann veg, að hún hefði verið lokin á útsendingunni fyrir níu fréttirnar, en kjaftaskjóðurnar tvær urðu hins vegar með blaðri sínu til þess að rústa þessu.  

Aö vísu var það að visu nefnt að lokaathöfnin yrði sýnd beint á RUV tvö, en skaðinn af völdum frekjublaðraranna var skeður.

Nú er bara að vona RUV reyni að bjarga þessu í horn með því að endursýna lok setningarathafnarinnar og helst að stroka blaðrarana alveg út úr henni. 


mbl.is Vésteinn ekki í íslenska bátnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. júlí 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband