10.4.2010 | 23:13
Tapaði söngvakeppnin fyrir Borgarholtsskólanum?
Ef maður sigrar einhvern tapar sá sem bíður ósigurinn. Ég hélt að Borgarholtsskóli hefði borið sigur úr býtum í söngvakeppninni en hún ekki beðið ósigur fyrir skólanum.
Borgarholtsskóli sigraði í söngkeppninni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Djúpt Ómar, ekki ósvipað og;
Af hverju er heitara í sveitinni en á sumrin?
Vegna þess að það er kaldara í borginni en á veturna!
kveðja
Guðmundur Júlíusson, 10.4.2010 kl. 23:27
Hvað er líkt með fíl? Hann kann hvorki að hjóla.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 10.4.2010 kl. 23:32
Já það virðist ekki vera ráðningarkrafa hjá mbl að hafa góða málvitund. En eitt skil ég ekki: Hvert fluttu þeir skólann?
Edda Björk Hafstað Ármannsdóttir (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 11:22
Söngkeppni er það, Ómar.
Í söngvakeppni tónskáld um að semja sem besta söngva. Í söngkeppni er keppt í söng (eða rappi).
Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 20:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.