BESTI HÁLFLEIKUR ÍSLENSKRAR HANDBOLTASÖGU

Nú þegar síðari hálfleikur leiks Íslendinga og Frakkka er nýhafinn er ellefu marka munur. Ég held að það sé sama hvernig síðari hálfleikur fer, við skulum gleðjast yfir frábærustu frammistöðu íslensks landsliðs í einum hálfleik frá upphafi. Þetta er ekki B-keppni, þetta er viðureign við Evrópumeistara og ég segi bara: Takk, takk, takk! og er reiðubúinn að fyrirgefa mikið ef illa fer í síðari hálfleik.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Bergz

Jæja, Ómar, botnaðu nú:

Ef að allt til fjandans fer

og Frakkar ganga á lagið

Snorri Bergz, 22.1.2007 kl. 20:07

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég get bara hlustað og rifjað upp gamla handboltafílinginn með FH forðum daga. Núna eru frakkar komnir í maður á mann sem þýðir að þeir eru orðnir verulega skelkaðir.

Áfram Ísland þið vinnið þennan leik....tra la la!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.1.2007 kl. 20:12

3 Smámynd: Kristján Pétursson

Besti leikur Íslands fyrr og síðar.Dásamleg gleðistund.Allir stóðu vaktina frá upphafi til enda.Hvað sem síðar mun gerast í keppninni eru þeir hetjur,

Kristján Pétursson, 22.1.2007 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband