30.12.2011 | 22:37
"Árið 2012 - þá og nú",- nýr texti um spádómana 1967.
Í textanum "Árið 2012" sem gerður var fyrir 45 árum og Vilhjálmur Vilhjálmsson söng af snilld í frábærri útsetningu og hljóðfæraleik hljómsveitar Magnúsar Ingimarssonar var mörgu ótrúlegu spáð um árið 2012 en ekkert var minnst á þann möguleika að konur yrðu í meirihluta í ríkisstjórn á því ári.
Heldur ekki á þann möguleika að Jóhann, sonur Vilhjálms, hyggðist hefja söngvaraferil sinn af alvöru einmitt árið 2012 og syngja um það, hvernig spádómarnir gömlu hefðu ræst með því að fara fyrst með upprunalega textann en síðan viðbót sem sýndi hvernig ræst hefði úr því sem spáð var.
Og riðið á vaðið með Óskari Péturssyni, Gunnari Þórðarsyni og mér í Kastljósinu í kvöld, sjá link neðar á síðunni inn á klippta upptöku sem Lára Hanna Einarsdóttir sendi mér.
Textinn var upphaflega gerður fyrir stutt kántrílag, en Villi heitinn var afar hrifinn af bandarískri sveitartónlist - , og því var formið knappt, aðeins hægt að tæpa á fáum atriðum.
Lagið, sem er eftir B. Owens, bauð ekki upp á ártal með fleiri en fimm atkvæðum og 2012 var hæsta ártalið sem hægt var að nota af viti, því að næst á eftir því í tímalínunni kemur ártalið 3001.
Grunnhugsunin að baki textans var sú að 2012 yrði komin á bylting hins smáa í tölvutækninni og sjálfvirknin yfirgengileg, langt umfram það sem við gátum ímyndað okkur 1967.
Munum, að 1967 var tölvubyltingin ekki gengin í garð. Háskólinn var að fá eina tölvu sem var svo fyrirferðarmikil, að hún fyllti heilt herbergi og gat ekki leyst nema brot af því sem lítill farsími eða örtölva eða tölvukubbur gerir nú.
Maður varð því að leita að einhverju smáu, sem þá var til, til að túlka spádóminn, eins og kemur fram í hendingunni um útvarpsstjórann 2012: "....yfirmaður hans var lítill vasatransistor", -
- og: "forsætisráðherrann var gamall IBM."
Heildarhugsunin var sú að vinnsla mála í framtíðarþjóðfélaginu yrði kominn í sjálvirkni tækninnar: -
"...vélar unnu störfin og enginn gerði neitt."
Í seinni hluta nýju gerðarinnar er þetta afgreitt svona: "...því tölvur vinna störfin og hugsa fyrir menn"
Í nýju viðbótinni er útvarpsstjórinn afgreiddur svona: "...öllu nú i lífi´hans stjórnar snjallsíminn svo smár."
Og forsætisráðherrann svona: "...forsætisráðfrúin er spánný Macintosh."
Tölvubyltingin er nefnilega langstærsta breytingin milli 1967 og 2012. Ef allir tölvustýrðir hlutir og verkefni hættu á sama tíma í landinu, myndi þjóðlífið allt stöðvar, jafnt innan sem utan dyra.
Í textanum 1967 var gantast með það að á veitingastað yrði boðið upp á eitthvað annað en áfengi.
Þá datt manni helst í hug sprauta en árið 2012 tekur morgunstund að fara til Hollands þar sem hass er leyft.
Um fjölgun mannkynsins var því spáð að ný tækni gæti gert gömlu aðferðina úrelta: "...við notum pillur nú til dags."
En pillutæknin og aðrar fjölgunaraðferðir 2012 eru komnar fram úr spádómunum 1965 með klónun og tæknifrjóvgun.
Látum þetta nægja um nýja textann sem var fluttur í Kastljósinu og má skoða á ruv.is. Þegar ég sagði frá að eitthvað svona stæði til í haust var hvatt til þess að gert yrði myndband um málið og það hefur nú verið gert.
Myndin á síðunni er af tveimur bílum, sem voru til taks við myndbandið og voru upp á sitt besta fyrir 1967. Þess má geta að 1967 endaði textinn svona:
"...Gömlu dagana gefðu mér, -
en sá draumur -
og ég er ánægður með lífið eins og það er."
Svona er lagið sungið núna og hægt að bera saman spádóma og veruleika.
Þess má geta að ég las nýlega í tæknitímariti um þann möguleika, að eftir fimmtíu ár verði komin tækni til að safna saman helíum 3 á tunglinu og flytja 100 tonn til jarðarinnar á ári, en það myndi fullnægja orkuþörf mannkynsins. Í dag væri því hægt að spá 45 ár fram í tímann: "...Þeir tunglið höfðu sópað allt og tæmt í hólf og gólf".
Sunginn texti er feitletraður en talaður texti með grönnu letri. Flutninginn á laginu í Kastljósi í kvöld má finna hér http://www.youtube.com/watch?v=wKJxtvwYwHo
ÁRIÐ 2012 - ÞÁ OG NÚ.
Fyrir næstum hálfri öld velti ég vöngum yfir því hvernig lífið og tilveran yrðu árið 2012 og svona hljómaði spádómurinn:
Mig dreymdi´að ég væri uppi árið 2012.
Þeir tunglið höfðu malbikað og steypt í hólf.
En veröldin var skrýtin - það var allt orðið breytt,
því vélar unnu störfin og enginn gerir neitt.
Og ekki hafði neitt að gera útvarpsstjóri vor
þvi yfirmaður hans var lítill vasatransistor
og þingmennirnir okkar voru ei með fúlle fem,
því forsætisráðfrúin er spánný Macintosh.
Gömlu dagana gefðu mér !
Þá gat ég verið einn með þér.
Nú tæknin geggjuð orðin er.
Gömlu dagana gefðu mér !
Ég álpaðist á bíó þar með ungri stúlkukind
en ekki hélt ég út að horfa´á kaboj-röntgenmynd.
Ég dapur fór á barinn og um doble bað af stút
en er dóninn tók upp sprautu, þá flýtti ég mér út.
Gömlu dagana gefðu mér!
Þá gat ég verið einn með þér.
Nú tæknin geggjð orðin er.
Gömlu dagana gefðu mér!
Mig dreymdi ég væri giftur þeirri sömu sem ég er.
Hún sagði: "Ó, mér leiðist þetta barnaleysi hér."
Ég gerðist nokkuð bráður og vildi bæta úr því strax.
"Nei, bíddu", sagði hún, góði, "við notum pillur nú til dags."
Þá fannst manni þetta ógnarlangt frammi í framtíðinni, en skyldu þessir spádómar hafa ræst á einn eða annan hátt? Skoðum það:
Nú er runnið upp hér árið 2012
en tunglið hvorki malbikað né steypt í hólf og gólf.
En tilveran er skrýtin og tryllingsleg í senn
því tölvur vinna störfin og hugsa fyrir menn.
Og ekki hefur margt að gera útvarpsstjórinn knár
því öllu nú í lífi´hans stjórnar snjallsíminn svo smár
og þingmenn ei með fúlle fem nú fíflast hér í kross
því forsætisráðfrúin er spánnýr Macintosh.
Er álpast ég til Hollands á einni morgunstund
æra mig þar tækninýjundar á flesta lund.
Ég dapur fer á barinn og um doble bið af stút
en er dóninn býður hassköggul, þá flýti ég mér út.
Pillutækni vísindanna mögnuð orðin er:
Enginn vandi´að nota klónun til að fjölga sér.
Tæknifrjóvgun stórkostleg er stunduð hér í dag:
Staðgöngumæðrum verður bráðum löggilt fag.
Gömlu dagana gefðu mér !
Þá gat ég verið einn með þér.
Nú tæknin geggjuð orðin er.
Til gömlu daganna gef mér far
fljótt til baka.
Ég yrði ánægður með lífið eins og það var.
Athugasemdir
Ó þú mikli Nostradamus!
Það þarf mikla heilaleikfimi til að geta breytt kántrýábreiðu í snilldarverk og tækifærisbulltexta í 'spádóm'.
1. Transistor/smári er löngu úrelt fyrirbæri.
2. IBM sat eftir í þróun PC-tölva.
3. Vélar létta mönnum störfin í dag.
4. Pillur eru ekki notaðar til að fjölga mannkyninu.
5. Sprautan er gamall vímugjafi.
Það er í besta falli hægt að hafa gaman að bullinu á þriðja glasi, en að fara að útmála þennan texta sem 'spádóm' í Kastljósi er tært rugl.
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 31.12.2011 kl. 08:07
1: Hilmar vs Wiki. Wiki segir "The transistor is the key active component in practically all modern electronics."
2: Jahá? Þeir voru reyndar snemma, og á undan, og eiginlega eina alvöru nafnið, og svo best ég veit ekki dauðir. En Ómar syngur "Gamall IBM"
3: Eins og áður....
4: Hefurðu aldrei áttað þig á því að þetta er brandari, sem rættist reyndar að hluta með glasafrjóvgun (svona í áttina), en á sér m.a. rætur í Woody Allen mynd. Jafnvel myndinni "Barbarella" líka.
5: Gamall, - og í brúki. Náði sínum hápunkti eftir útgáfu lagsins.
Jón Logi (IP-tala skráð) 31.12.2011 kl. 11:00
Það er hægt að spá og búa til spádóma og kalla það spádóma, hvort sem þeir rætast eða ekki að öllu eða engu leyti.
"Spádómar" Völvu Vikunnar eru alltaf kallaðir því nafni þótt reynslan sýni hve valtir þeir geti verið.
Í hörðum dómi um lag B. Owens, söng Vilhjálms og útfærslu Magnúsar Ingimarssonar og hljómsveitar hans felst sérkennilegur og einhæfur dómur.
En allir hafa sinn smekk.
Ef það yrði prófað að slökkva samtímis á öllum tölvukubbum, tölvustýrðum kerfum stórum og smáum, allt frá hinni tölvustýrðu Landsvirkjun, fjölmiðlum, símanum og hverju eina, myndi þjóðlífið stöðvast, bæði innan og utan dyra á sama augnabliki. "Enginn gerði neitt" eða gæti gert neitt".
Tölvstýringar í vélunum í bílum okkar myndu meira að segja stöðvast svo að við kæmumst ekki leiðar okkar.
Textinn 1967 var gerður í framhaldi af miklum pælingum okkar Vilhjálms, sem byggðust mest á því hve ótrúlega fjölfróður hann var.
Í textanum var auðvitað ekki hægt að nefna þá tæknilegu hluti réttum nöfnum sem myndu stjórna lífi okkar í smáu og stóru árið 2012.
Okkur grunaði hins vegar að árið 2012 myndu mennirnir verða algerlega háðir þeirri tækni sem þeir hefðu búið til. Eða eins og segir í textanum: "Nú tæknin geggjuð orðin er".
Árið 1967 var orðið "geggjað" ekki notað í sömu merkingu og nú þannig að orðalagið "tæknin geggjuð" var mun sterkara þá en nú.
Samt var glæpst á að nota orðfæri ársins 2012 !
Ómar Ragnarsson, 31.12.2011 kl. 11:01
Mig langar að vita hvaðan þessi Macintosh tilvísun er til komin.
H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 31.12.2011 kl. 13:00
"Gamall IBM" var orð sem var árið 1967 notað sem tákn yfir það hve háður forsætisráðherrann 2012 yrði í raun tölvutækninni.
2012 eru það "Apple", "Vindows" eða "Macintosh" og af þessum þremur orðum er heitið "Macintosh" það sem auðveldast er að ríma á móti.
Eftir 45 ár væri það eitthvert enn annað heiti, sem jafnvel Nostradamus, þótt hann væri uppi núna, ætti erfitt með að spá fyrir um.
Ómar Ragnarsson, 31.12.2011 kl. 14:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.