11.9.2012 | 11:31
Hvað sagði ekki George Best?
Ætli Lindsey Lohan sé ein um það að eyða peningum hraðar en þeirra er aflað? Mike Tyson er hugsanlega tekjuhæsti íþróttamaður sögunnar með milljarða tekjur á sínum tíma en varð samt gjaldþrota fyrir nokkrum árum.
Joe Louis sem af flestum er talinn annar af tveimur bestu þungavigtarboxurum sögunnar græddi líka ágætlega en á meðan hann eyddi bestu árum sínum á stríðsárunum í að þjóna föðurlandi sínu með því að fara um heiminn og koma fram á herstöðvum hlóðust skattaskuldir upp og í lokin neyddist hann, farinn að kröftum, til að láta berja sig til að reyna að standa í skilum.
Þau ár sem George Best var mesta fótboltastjarna Bretlands óð hann að sjálfsögðu í peningum en óð líka í víni og konum og var "enfant terrible" uns hann drakk sig að lokum út úr heiminum.
Hann útskýrði þetta atferli sitt eftirminnilega þegar hann var spurður hvernig hann hefði farið að því að eyða öllum þessum miklu peningum: "Ég eyddi þeim að mestu í vín og konur og afgangurinn fór í einhverja bölvaða vitleysu."
Sóar öllu sínu fé | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.