Er Ágústa ekki jafngóð eða betri, Gulli?

Denise Austin er sögð kenna magnaða æfingalotu til þess að brenna af sér fimm kíló og snilldin er sýnd á netinu.

Án þess að ég hafi verið beinlínis að glápa á líkamsræktartímana, sem voru hér á morgnana á Stöð 2 um árið, finnst mér það nokkuð kunnuglegt sem ég sé með því að slá niður hér og þar í þessu myndbandi,og æfingarnar hjá Austin býsna líkar þeim sem voru sýndar á Stöð tvö.

Og þá vaknar spurningin hvort Ágústa Johnson hafi bara ekki verið jafngóð eða betri en Austin.

Og er hún það þá ekki enn, Gulli ?

Þannig að það sé hið minnsta mál að henda af sér eins og tíu kílóum í samræmi við óskir þar að lútandi?


mbl.is Losaðu þig við 5 kíló með réttum æfingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Johnson kemur hér nú heit,
holdsins fýsna After Eight,
undur fögur undirleit,
eins og tveggja vetra geit.

Þorsteinn Briem, 28.12.2012 kl. 00:00

2 identicon

Ég hef bara prófað Ágústu.

Hún er best :)

Guðlaugur Þór Þórðarson (IP-tala skráð) 29.12.2012 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband