27.2.2013 | 23:11
Máninn fylgist með umferðinni.
Russell Crow sagði Jay Leno víst frá íslenska rokinu á mánudagskvöld.
Hann sagði honum líka frá fegurð landsins.
Ekki sagði hann frá fegurð himinhnattanna á hvelfingunni og hefur kannski aldrei verið svo heppinn í ferðinni að upplifa þegar himinhvelfingin er stráð óteljandi himinhnöttum, enda ekki kominn vetrartíminn með sínum löngu nóttum og norðurljósum.
Hann á vonandi eftir að koma aftur og upplifa slíkar nætur þegar máninn hátt á himni skín.
Það gerir hann reyndar ekki alltaf, að minnsta kosti ekki í kvöld þegar hann á ólíklegasta stað.
Þegar beðið var á rauðu ljósi á gatnamótum Hringbrautar og Snorrabrautar gægðist sá gamli lágt undan dökkri skýjahulu til að fylgjast með umferðinni á Miklubrautinni eins og sést á þessari mynd sem ég smellti af honum.
Sagði Leno frá íslenska rokinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.