3.3.2013 | 14:22
Heitir landið ekki Ísland ?
Samkvæmt veðurspá mun veðrið um næstu helgi verða eitthvað aðeins hlýrra en í meðalári. En við erum orðin svon góðu vön það sem af er árs að smá norðanhvellur, sem verður næstu daga, virkar á okkur sem hálfgerð svik og "algjör umskipti".
Á sunnanverðu landinu er ekki spáð snjókomu nema afar takmarkaðan tíma þessara daga, sem framundan eru.
Hálfur bílaflotinn á höfuðborgarsvæðinu, ca 60 þúsund bílar, eru búnir að lemja lélegt slitlag gatnakerfisins með óþörfum nöglum í mestallan vetur og slíta honum upp svo nemur hundraða milljóna kostnaði.
Á Sauðárflugvelli í 660 metra hæð inni á miðju austurhálendinu hefur verið allt upp í sex stiga hiti alla daga nema einn í meira en hálfan mánuð.
Landið heitir jú Ísland, er það ekki? Við erum með mesta ísskjöld á norðuhveli jarðar í aðeins 285 kílómetra fjarlægð frá Hornströndum og það er hindrunarlaus leið fyrir íslkald loftið á norðurpólnum, þar sem enn er nótt allan sólaringiinn til að blása sér yfir ís og sjó alla leið frá þaðan til okkar.
Algjör umskipti í veðrinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er nú ekkert!
Ég var fermdur um miðjan júní í stórhríð í Svarfaðardal.
Halda átti fermingarbarnamót í Hrísey en því var aflýst vegna veðurs.
Bekkjarbróðir minn, Hjöri á Tjörn, aftari helmingurinn á Hundi í óskilum, lét hins vegar ekki ferma sig, enda kommúnisti.
Þorsteinn Briem, 3.3.2013 kl. 14:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.