2.7.2013 | 07:51
Eftirminnilegir tímamótaviðburðir.
Ein eftirminnilegasta stundin í starfi stjórnlagaráðs var þegar Freyja Haraldsdóttir flutti stefnuræðu sína á fundi ráðsins. Hún tók drjúgan þátt í starfi ráðsins og sér þess merki í frumvarpi þess til nýrrar stjórnarskrár, til dæmis í mannréttindakaflanum.
Nú brýtur hún aftur blað, í þetta sinn í sögu Alþingis, með jómfrúarræðu sinni.
Áður hafði sá áfangi náðst fyrir sjö árum að Sigurlín Margrét Sigurðardóttir hafði talað úr ræðustóli Alþingis með því að nota táknmál, fyrst ræðumanna á hinu virðulega þingi.
Freyja flutti jómfrúræðu sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
2.7.2013 (í dag):
Ræðustól Alþingis verður breytt
Þorsteinn Briem, 2.7.2013 kl. 11:22
Öllu þingi af hún bar,
ekki þarf að kynna,
Inga Lind var ekki þar,
úti var að vinna.
Þorsteinn Briem, 2.7.2013 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.