10.5.2014 | 09:48
Konur hafa lengi átt erindi í bílaiðnaðinn.
Áhrif kvenna og hugmyndir þeirra hafa lengi verið vanmetnar í bílaiðnaðinum. Þær eru helmingurinn af notendum bíla og þetta er því ekki aðeins spurningu um stjórnun og áherslur heldur líka um markaðinn.
Konur voru í meirihluta þeirra, sem réðu útliti og hönnum fyrstu Opel Corsa bílanna, sem þóttu heppnast mjög vel.
Það var kona forstjóra Fiat-verksmiðjanna sem átti hugmyndina að og barðist fyrir gerð hins nýja Fiat 500, sem er einhver best heppnaða aðgerð í bílasmíði síðari tíma.
Nú er kona orðin forstjóri Citroen verksmiðjanna sem lengi vel blómstruðu vegna frjórrar og framsækinnar hugsunar.
Meira af þessu !
Bresk kona tekur við Citroen | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.