7.12.2014 | 01:35
Í tilefni af frétt af svínum, sem ganga laus.
Eftir Hrun varð mikið maus,
margskyns prettir, röfl og raus.
Yfir því má hengja haus
að hérna ganga´enn svínin laus.
Svín gengur laust í Mosfellsbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Traustið þvarr og trúna kól
táraður Geir oss Guði fól
aftur verður allt hér spól
eigri laus svín um þessi jól
Um það kanski enginn veit
hvar á að gera að svínum leit
sullast í mörgum sælureit
og sjást nú víst í Mosfellssveit
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 7.12.2014 kl. 02:11
Bjarni Gunnlaugur góður!
Þorsteinn Briem, 7.12.2014 kl. 05:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.