7.1.2015 | 10:49
Óendanlega margar jarðir?
Ef eilífðin og óendanleikinn eru ráðandi í alheimi sem er óendanlega stór og tíminn byrjaði aldrei og endar aldrei eru óendanlega miklar líkur á tvífarajörðum og tvíförum okkar.
Ég bið því að heilsa tvífara mínum, sem situr og er að blogga það sama og ég eða svipað og ég, við skiptum hugsanlega um líkama í draumum okkar í nótt í krafti fjarhrifakenningar Helga Pjeturss og vitnum í sömu ljóðlínuna um Drottin allsherjar:
"Vítt um geim um lífsins lendur
lofuð séu´hans verk.
Felum okkur í´hans hendur
æðrulaus og sterk.
Fundu plánetu líka jörðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Engin önnur jörð er svo vitlaus að vera með Framsóknarflokkinn.
Þorsteinn Briem, 7.1.2015 kl. 14:33
Hins vegar erum við væntanlega skammt á veg komnir í tækni og vísindum, enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn haldi að við séum komnir þar á endastöð.
7.1.2015 (í dag):
Charger boosts battery in seconds
Þorsteinn Briem, 7.1.2015 kl. 14:44
Ætli nokkur önnur jörð sé með Briemarann?
Jón Logi (IP-tala skráð) 7.1.2015 kl. 19:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.