30.1.2015 | 00:25
Hvenær eru "varahlutirnir" orðnir of gamlir?
Í frétt um líffæragjafir er þess getið að 18 ára aldur sé skilyrði fyrir því fólk geti gefið líffæri eftir sinn dag.
Fróðlegt væri að vita hvort eitthvert aldurtakmark er í hinum enda ævinnar, eða hvort það sé matsatriði hvort viðkomandi líffæri sé nothæft.
Ef eitthvað af mínum líffærum er nothæft, þótt ekki væri nema í neyð, myndi ég láta skrá samþykki mitt fyrir slíkri gjöf.
Í Danmörku eru lögin víst þannig að fólk verður að lýsa yfir því að það vilji ekki gefa líffæri eftir andlát sitt, en annars teljist aðgerðarleysi sama og samþykki.
Þetta byggist á því að með sívaxandi tækni vex skorturinn á líffærum og að það megi ekki gerast að óþörfu að manneskja láti lífið vegna þess að það vantaði "varahlut".
Allir geta tekið afstöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ástand líffæranna skiptir væntanlega mestu máli og móðurafi minn lifði öldum saman, fæddist árið 1899 og dó 2000.
Um að gera að skrá sig og svo kemur í ljós hvort eitthvað er nothæft eftir alla kókdrykkjuna og prins póló-átið.
En Framsóknarmenn vilja örugglega ekki fá heilann.
Afstaða til líffæragjafar á heimasíðu Landlæknisembættisins
Þorsteinn Briem, 30.1.2015 kl. 00:51
"Allir sem orðnir eru 18 ára geta tekið afstöðu til líffæragjafar á vefsíðu Landlæknisembættisins.
Jórlaug [Heimisdóttir verkefnisstjóri hjá embættinu] segir hvorki aldur né heilsufar skipta þar máli; komi líffæragjöf til greina séu framkvæmdar rannsóknir til að skera úr um hvort líffæragjöf er möguleg og hvaða líffæri viðkomandi getur gefið."
Þorsteinn Briem, 30.1.2015 kl. 04:26
Sæll Ómar
Ekkert aldurshámark, við skyndilegt andlát þá kemur í ljós hvort "varahlutirnir" séu í lagi og hvort vöntun sé á þeim.
Birna Guðmundsdóttir bjargaði tveimur 62ja ára til dæmis sem er ekki hár aldur. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/01/30/bjargadi_tveimur_mannslifum/
Steinunn Rósa Einarsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2015 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.