27.2.2015 | 04:47
"Ég ætla að hætta´að drekka´á morgun."
"Ég ætla´að hætta´að drekka´á morgun" sungu Stuðmenn á sínum tíma í orðastað blindfulla mannsins, en auðvitað var ekki orð að marka hann.
Stundarhagsmunir á grundvelli níðþröngra sjónarmiða hafa ráðið för allar götur síðan stefna var mörkuð með Ríó-sáttmálanum 1992.
En nær ekkert hefur verið farið eftir í neinum meginatriðum, og síst af öllu af okkur Íslendingum, sem ökum enn um göturnar mest mengandi bílaflota Vesturlanda.
Síðan hafa fylgt í kjölfarið Kyoto-samningur og alþjóðafundir, sem hafa í raun sáralitlu skilað.
Eina alþjóðasamfélagið sem einhverju hefur skilað í að draga úr útblæstri er ESB og er í umræðunni hér málað eins og skrattinn á vegginn á alla lund.
Höfum kosið að gera ekkert | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Svar við neyslukönnun Hagstofunnar:
Það er barningur og basl,
blankheit, rusl og drasl,
en maginn er stopp,
og mest píkupopp,
ég maula - og typpanasl!
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/02/26/ma_bjoda_ther_pikupopp_eda_typpanasl/
Þjóðólfur í Matargati (IP-tala skráð) 27.2.2015 kl. 12:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.