17.3.2015 | 12:11
Sérstaða Vitara er horfin, en nýr og spennandi bíll kominn.
Þegar Suzuki Vitara kom fram 1988 markaði sá bíll ákveðin tímamót í framleiðslu aldrifsbíla.
11 árum fyrr hafði Lada Niva (Sport á Íslandi) verið tímamótabíll í hönnun jeppa, léttur og nettur, með góða veghæð, mikla torfærueiginleika, hátt og lágt drif, en jafnfram heilsoðna byggingu án grindar, sjálfstæða fjöðrun að framan og gormafjöðrun allan hringinn.
Fram til 1988 var Suzuki Fox eini jeppi verksmiðjanna, frábærlega vel hannaður smájeppi, samanber ferðir ferðir Fox jöklajeppa um Vatnajökul. Á mynd sést hann við hlið venjulegt jöklajeppa, en flotmagnið á Foxinum er meira, 94% á móti 70% á stærri jeppanum á myndinni.
Vitara var nokkurn veginn jafn stór og Ladan, meira að segja með nákvæmlega sama hjólhaf upp á millimetra, 2,20 m, sams konar fjöðrun, hátt og lágt drif og ótrúlegan léttleika, þyngdin aðeins um 1100 kíló.
Samt var bíllinn á sjálfstæðri grind og var ævintýri líkast að kynna sér hvernig hönnuðir Suzuki fór að því að gera bílinn svona léttan.
Miðað við Fox, litla Suzuki jeppann, mátti þó sjá örlítil merki um upphaf þess flótta frá torfærueiginleikum, flótta, sem nú hefur endanlega gengið frá Vitara sem jepplingi með sérstöðu á því sviði.
Veghæð Vitara 1988 var í tæpasta lagi og hljóðkúturinn skagaði niður fyrir hásinguna og varð ansi neðarlega ef bíllinn var hlaðinn.
En sjálstæða grindin gaf hins vegar möguleika á upphækkun og stærri dekk.
Hægt var að koma 31 tonnum dekkjum undir óbreyttan Vitara, og það þýddi eitt og sér hækkun á veghæð úr 20 sm í 24 sm.
Síðan kom lengri gerð á markaðinn og hér á landi má sjá Vitara af árgerðunum 1988-98 á allt upp í 35-36 tommu hjólbörðum.
Eins og er, hef ég undir höndum Vitara 1998 með frábærlega sparneytinni dísilvél á 36 tommu börðum. Hann er aðeins 1500 kíló og því með svipað flotmagn á jöklum og gamall Hilux á 38 tommu dekkjum.
Flotmagnið er samkvæmt formúlu minni 88%. Og 2012 fór ég í myndatökuferð á stuttum Vitara á 33ja tommu dekkjum upp í Grímsvötn og þar áður í ferð um Mýrdalsjökul. og hann stóð sig fyllilega í þessum ferðum, þótt hann væri meira en helmingi léttari en hinir jepparnir. Þessi stutta Vitara er aðeins 1220 kíló og með flotmagnið 86%.
1999 kom ný gerð af Vitara, þar sem enn var hörfað lítillega varðandi torfærugetu. Á þessum Vitara var ekki hægt að koma nema 29 tommu dekkjum undir bílinn í stað 31ja áður og veghæðin aukin úr 20 sm upp í 22.
En ennþá var Vitara með hátt og lágt drif og á sjálfstæðri grind og sjá má bíla í umferð með upphækkaða byggingu og á stærri dekkjum.
2005 kom síðan sá bíll fram sem hefur verið fram að þessu.
Enn minnkuðu torfærueiginleikarnir frá því sem áður var, því að þessi bíll er með heilsoðna byggingu og því ekki hægt að hækka boddíið á grindinni.
En þetta var ekki algerlega hönnun Suzuki eins og áðir, heldur var þetta sama bygging og á Chevrolet Equinox og Pontic Torrent, en þeir bílar voru ekki með hátt og lágt drif.
Háa og lága drifið hélst sem sé á Vitara, en hlaðinn hefur þessi bíll verið eins og hver annar af svonefndum jepplingum, sem verða þegar þeir eru hlaðnir, að ígildi venjulegra aldrifinna fólksbíla.
Umboðið, sem ævinlega hefur verið með mikla þjónustulund og stóð af sér Hrunið án þess að farið væri í sjóði skattborgaranna upp á milljarða til að bjarga því, bauð upp á hækkun á fjöðrun fyrir aðeins 70 þúsund krónur. Ég hef hins vegar fáa slíka bíla séð.
Og nú er sem sagt búið að ljúka sögu torfærubílsins Vitara með hinni nýju Vitöru, sem er af sömu megingerð og aðrir svonefndir jepplingar, ekki lengur hátt og lágt drif, enn minni veghæð en áður og skögun að framan lítt til torfæruferða fallin.
En þetta er hins vegar alveg nýr og spennandi bíll í vinsælum flokki bíla.
Vitara 1988 var með nær engu farangursrými en sú nýja með dágóðu rými. Og þetta er "heitasti" flokkurinn í bílasölunni og því gæti ný Vitara orðið smellur.
Nú er bara spurningin um eina alvöru torfærubílinn eða jeppann í þessum stærðar- og verðflokki, sem er á boðstólum, Suzuki Jimny.
Ég hef séð myndir af hugsanlegum arftaka hans og sýnist í fljótu bragði að Suzuki ætli að reyna að viðhalda jeppaeiginleikum, þótt engu sé hægt að slá föstu enn um það.
P. S. Konan mín ákvað að fá sér bíl af minnstu og ódýrustu gerð, Suzuki Alto, og er því með Suzuki Jimny 2006 PM 481 til sölu á J.R.bílasölunni við Bíldshöfða. (Sjá mynd) Jimnyinn er ekinn 169 þúsund, upphækkaður um 4 sm, á 215/75-15 dekkjum, með nýjan gírkassa, kúplingu, púst og bremsuklossa. Hiti í sætum, ljúfur bíll og afar sparneytinn, ( 7,2 í blönduðum akstri), enda ekki nema 1110 kíló og með 1325 cc 85 hestafla vél. Þetta er alvöru jeppi með hátt og lágt drif en samt afar nettur borgarbíll, með nákvæmlega sömu utanmál og Kia Picanto, 3,60 x 1,60m. Allt að 100% visa/euro í boði.
Meiri bíll í minni pakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég keypti enn svona Jimny nýjan 2006 og ætlaði að eiga hann svona í 16 ár og fara vel með gripinn. Bíllinn reyndist frábær fjórhjóladrifinn jeppi með hátt og lágt aðskilið drif. Flottur í snjóófærð og hálku en bensíneyðsla þótti mér alltaf miklu meiri en upp var gefið af framleiðanda . 2014 var ég búinn að keyra gripinn 95 þus. km og eina viðhaldið var bremsur og ásþétti á drifbúnaði - en við skoðun 2014 var gerð athugasemnd við ryðmyndun í boddýfestingum- það kom alveg í opna skjöldu og það voru slæmar fréttir eftir aðeins átta ára tilveru. Og þetta varð Jimny mínum að falli- meiriháttar mál að gera við þetta- og nú á ég engan Jimny lengur . Hann entist bara hálfa leið. En mér var sagt á sérverkstæði að þessi uppákoma væri mismunandi í þessum bílum. Vonandi er þinn betri.
Sævar Helgason, 17.3.2015 kl. 13:36
Þetta með ryðmyndunina kemur mér mjög á óvart. Hef aldrei heyrt neitt hliðstætt fyrr. Hvar áttu annars heima? Suður með sjó?
Var hann ryðvarinn aukalega hér heima eins og bíll Helgu var?
Bensíneyðsla allra bíla er hér á landi yfirleitt talsvert fyrir ofan það sem gefið er upp vegna kaldara veðurfars en í Mið-Evrópu, auk þess sem hún stenst meira að segja ekki þar.
Munurinn í akstri meðaljónsins er að minnsta kosti fjórðungi meiri eyðsla.
Ég hef ekkert annað í höndunum annað en 7,2 lítrana eftir EU-staðlinum og þess vegna nefni ég þá tölu.
Ómar Ragnarsson, 17.3.2015 kl. 15:12
Ég bý hér í upphæðum Áslandsins í Hafnarfirði . Seltan á götum að vetri er svipuð og annarstaðar . Jú hann er keyptur með íslenskri ryðvarnarábyrgð en ekki sinnti ég endurryðvarnarmálum.
Jú bílinn fór oft nálægt sjó þó aldrei færi hann í sjó sjálfur.
Ryðið var fyrst og fremst bundið við þessar boddýfestingar - bæði á grindinni sjálfri og á boddýinu sjálfu.
Ég er nú ekki viss um að þessi íslenska ryðvörn til viðbótar þeirri frá framleiðanda se mjög heppilegur kokteill.
Þar kemur til t.d rakastig (og selta) á bílnum við innlendu ryðvörnina-þegar ryðvarið er, en þá lokast sá raki inni og vinnur sem "rakakrabbamein" en það gæti skýrt mikinn mun á ryðmyndun á sömu tegund og hliðstæðri árgerð- sumir sleppa mjög vel meðan aðrir lenda sem á mínum -annars góða Jimny -í svona. Allavega reynslumikill réttingarsérfræðingur skoðaði bílinn vel og sagði mér frá þessum mikla mun sem oft kæmi fram á ryðmyndun innan sömu tegunda . Nú er það Skoda Fabía með galvanhúðun og engri innlendri ryðvörn sem er arftakinn- spenntur á sjá hvernig fer.
Sævar Helgason, 17.3.2015 kl. 15:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.