22.3.2015 | 21:29
Lúlli Karls sagði frá einum hinna "háttsettu".
Lúðvík heitinn Karlsson flugmaður var magnaðasti sagnamaður og spunameistari sem ég hef kynnst og ber öllum saman um það, sem þeirri snilld kynntust.
Hann gat haldið partíum gangandi í stanslausum hlátri heilu næturnar með spuna sínum.
Lúðvík hafði tekið sér svo margt fyrir hendur víða um heim að auðvelt var fyrir hann að færa í stílinn.
Einn staðurinn, sem hann hafði sannanlega verið á, var Tenerife á Kanaríeyjum, en þangað fór hann í brúðkaupsferð.
Honum sagðist svo frá að þegar honum fór að leiðast einhæfni í "köfunum" í brúðkaupsferðinni, hefði hann farið á köfunarnámskeið, og af því að vitað var að hann hafði lært köfun, varð frásögnin sennilegri þess vegna.
Lúlli sagði að köfunarkennarinn hefði verið háttsettur eimbættismaður í Þýskalandi fram til ársins 1945, en á útmánuðum þá um veturinn í upphafi árs, hafi honum fundist veðrið í Þýskalandi svo leiðinlegt að hann hafi farið til Tenerife vegna þess að veðrið þar hefði verið skárra!
Köfunarsnillingurinn kenndi Lúlla að varast stórhættulega hákarla með því að kafarnir hefðu með sér sérstaka tegund af skeljum sem þeir settu í sérstakt hólf á búningum.
Ef þeir væru fyrir framan hákarl, sem opnaði kjaftinn til þess að gleypa þá, skyldu þeir taka skelina og henda henni inn í hákarlskjaftinn. Svona skelfiskur væri mesta hnossgæti hákarlanna og þeir létu sér nægja þetta hnossgæti.
Svo bætti Lúlli við og glotti: "Þetta bjargaði okkur oft, sem vorum með þessar skeljar tilbúnar. Hins vegar voru nokkrir menn af Gyðingaættum meðal nemenda, sem ekki nutu þessa, því að þýski köfunarmeistarinn sagði þeim aldrei frá því."
Fundu leynistað nasista í Argentínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Aulabrandari!
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 22.3.2015 kl. 21:52
En fyndið samt...eins og hann sagði hann þá....
Már Elíson, 23.3.2015 kl. 01:01
Tessi var nasty!
Oskar Frímannsson (IP-tala skráð) 23.3.2015 kl. 02:04
Fyrir þá sem ekki voru viðstaddir þegar Lúlli spann og spann tímunum saman er erfitt að setja sig inn í stemninguna, sem byggðist á hraðanum og framsetningunni hjá honum, sem engan veginn skilar sér í prentuðu máli.
Ómar Ragnarsson, 23.3.2015 kl. 11:39
Other incidents thought to be caused by deliberate pilot action
Source: Aviation Safety Network
Þorsteinn Briem, 26.3.2015 kl. 14:23
Source: Aviation Safety Network
Þorsteinn Briem, 26.3.2015 kl. 14:25
BBC - Co-pilot 'wanted to destroy plane'
Þorsteinn Briem, 26.3.2015 kl. 14:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.