7.6.2015 | 23:02
Nýjasta lekamálið.
Í ljósi fyrsta sunnudagsfundar Alþingissögunnar út af leka í DV á föstudagsmorgni má fara´að breyta orðtakinu "oft veltur lítil þúfa þungu hlassi" í "oft veltur lítill leki lúmsku hlassi" varðandi svonefnda "sniðgönguáhættu", sem þýðir á mannamáli það að eigendur gríðarlegra fjárhæða lokaðra í gjaldeyrishöftum komist undan með þessa peninga, strax í fyrramálið, verði ekki að gert.
Lekinn í DV var talinn geta valdið hamfaraflóði peninga úr höftunum.
Alþingi nú er til taks,
ógn og skelfing vekur,
að undankoma opnast strax
ef að DV lekur.
![]() |
Höftin hert til að liðka fyrir afnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.