29.6.2015 | 20:32
"Enginn undir hálfri milljón."
Úrvalið á reiðhjólamarkaðnum er mikið ekkert síður en á bílamarkaðnum. Ég þekki lítið til venjulegra reiðhjóla en veit, að hægt er að kaupa "reiðhjól með rafhjálp" fyrir allt niður í 140 þúsund kall. Raunar væri alveg eins hægt að segja "rafhjól með fótahjálp", því að hjólreiðamaðurinn notar fæturna til að framkalla rafknúið átak á hjólið.
Ég kom í reiðhjólaverslun í Hafnarfirði í dag og þar var heldur betur mikið úrval hjóla eins og í öðrum helstu reiðhjólaverslununum.
Ég var eingöngu að spá í rafknúin hjól og hjólin þarna voru öflugri en hjólið sem ég á og var metið nýtt á 250 þúsund kall, en þessi kostuðu tæpa hálfa milljón.
Þarna voru afgreiðslumenn og viðskiptavinir og þegar ég spurði hvort nokkur keypti svona hjól fyrir hálfa milljón sögðu þeir einum rómi: "Enginn okkar er á hjóli sem kostar minna en hálfa milljón."
Rétt eins og á bílamarkaðnum er gríðarlegur munur á hönnun, getu og útbúnaði hjólanna.
Síðan bætist við ekki neitt smá úrval af alls kyns aukabúnaði og aukahlutum, sem getur spólað verðið upp um hundruð þúsunda fyrr en varir.
Þarna var á boðstólum öflugt, dýrt en handhægt rafhjól, sem nýtur þess að vera með aðeins 20 tommu hjól í stað 26 tommu.
Það getur munað um það ef fara á í blandað ferðalag þar sem hjólið er haft í bílnum eða utan á honum eða ofan á honum hluta leiðarinnar.
Það myndi koma sér vel fyrir mig að hafa hjólið mitt aðeins styttra, því að með það um borð, er aðeins hægt að sitja í ökumannssæti bílsins.
Myndirnar eru tvær, því að eftir á sá ég eð neðri myndin mætti vera betri og setti því hina efri inn líka.
Það hefur orðið bylting í hjólastígum síðan ég hjólaði smávegis fyrir 15 árum, en samt mættu þeir vera ögn sléttari víða.
Þar sem þeir eru steinsteyptir eru þeir sums staðar ansi ósléttir.
![]() |
Dýrari reiðhjól orðin að raunhæfara samgöngutæki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ættir að fá þér dráttarkúlu á bílinn, en það er hægt að fá svona brakket sem er smellt á kúluna og þá getur þú hengt hjólið á það. Ég var að koma úr 50 km hjólatúr í Reykjavík og bara á vöðvaaflinu einu saman. Hjólaði með sjónum upp á mislæga hringtorgið við Tungumela og aftur heim í vesturbæinn.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.6.2015 kl. 21:44
Takk fyrir þessa ábendingu, Rafn. Ég myndi reyndar setja dráttarkúluna á gamlan fornbíl, Suzuki Fox, sem ég á, eða nota dráttarkúluna, sem er á öðrum gömlum Fox, sem ég á líka.
Ómar Ragnarsson, 30.6.2015 kl. 00:22
Ómar hefur þú nokkurntíman átt nýjan eða nýlegan bíl?
Jon (IP-tala skráð) 30.6.2015 kl. 08:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.