20.8.2015 | 02:50
Ekki sama hvar útsýnið er.
Víðbótarverð á íbúðum í turnunum við Sæbraut vegna útsýnis nemur líklega meira en milljarði króna samtals.
Og vitinn á Dyrhólaey er með sjöfalt verðmætara útsýni.
Hins vegar var það úrskurðað að útsýnið og náttúruverðmætin sem drekkt væri með Hálslóni, væru ekki krónu virði.
Og þó var hægt að vitna í fjölda hliðstæðrar mála erlendis, þar sem notað var svonefnt skilyrt verðmætamat.
Eftir Kárahnjúkavirkjun virðist svo sem hún verði fordæmi fyrir aðrar virkjanir og mannvirki sem rísa á hálendi Íslands.
Sjöfalt verð miðað við miðbæinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Rafhjólið kom Ómari til Reykjavíkur
Þorsteinn Briem, 20.8.2015 kl. 03:50
Er eiginlega alltaf sammála þér.
Við núlifandi íslendingar verðum að fara varlega með landið okkar og hugsa um komandi kynslóðir............
Björn Jóhann Guðjohnsen (IP-tala skráð) 21.8.2015 kl. 00:45
PS. Til hamingju með hjóltúrinn. Hefur örugglega verið yndislegur á köflum ef ekki með öllu.
Björn Jóhann Guðjohnsen (IP-tala skráð) 21.8.2015 kl. 00:50
Enn eitt PS.
Þú ert ótrúlegur Ómar.
Björn Jóhann Guðjohnsen (IP-tala skráð) 21.8.2015 kl. 00:52
Nú er ég farinn að bulla, en finnst þó þegar ég skoða orðið ótrúlegur ekki vera rétta orðið heldur á betur við að segja : EINSTAKUR
Björn Jóhann Guðjohnsen (IP-tala skráð) 21.8.2015 kl. 01:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.