26.9.2015 | 13:06
Svipað viðhorf og oft hjá Bandaríkjamönnum.
Ástæða þess að Rússar hafa ævinlega staðið við bakið á Assad Sýrlandsforseta er áreiðanlega ekki sú að þeir séu hrifnir af stjórnarháttum þess manns, sem byggjast á því að hluti landsmanna og mikill minnihluti hefur haft öll ráð landsins í hendi sér og beitt valdi sínu af hörku.
Ástæðan er sú, að í augum Rússa er Assad illskásti kosturinn í landinu, og þetta mat þeirra, sem hefur reynst ekki svo galið í ljósi grimms veruleika og fyrir bragðið sterkari staða en áður hefur nú orðið sjálfri Angelu Merkel ljóst, þótt ekki farið það mjög hátt.
Þetta minnir um margt á þá afstöðu sem Bandaríkjamenn tóku áratugum saman gagnvart ráðamönnum margra ríkja og taka enn, til dæmis gagnvart stjórnvöldum í Sádi-Arabíu.
Þar í landi eru stækt trúarofstæki, mannréttindabrot og einræðisstjórn við völd, en Vesturveldin og þjóðir heims þora ekki að rugga bátnum vegna hinnar einstæðu og sterku stöðu sem Sádarnir hafa í olíubúskap heimsins.
Hafa farið eftirlitsflug yfir Sýrland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
What is at stake for Russia in Syria? - BBC
Þorsteinn Briem, 26.9.2015 kl. 13:15
http://www.attac.is/greinar/liðsafnaður-%C3%AD-ranga-átt-á-ný
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 26.9.2015 kl. 14:19
"Ástæðan er sú, að í augum Rússa er Assad illskásti kosturinn í landinu"
Rússar eru meira praktískt þenkjandi en þetta. Mundu: Assad & co eru/voru *yfirvöld* í Sýrlandi, og fóru því með stjórn auðlinda, sem er það sem rússar eru á höttunum eftir.
Money, maður.
Ásgrímur Hartmannsson, 26.9.2015 kl. 15:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.