29.11.2015 | 00:09
Mikill munur á birtunni.
"Mig dreymir um hvít jól" söng Bing Crosby fyrir 70 árum og platan var lengi vel söluhæsta platan í Bandríkjunum.
Þó er veðurfar þannig í syðri hluta Bandaríkjanna að snjór sést sárasjaldan því það þarf kulda til að úrkoma sé í formi snjókomu.
En öll dýrkunin á jólasnjónum sýnir hve mjög menning og auður norðurríkja Bandaríkjanna mótaði þjóðlífið síðustu aldir.
En hvers vegna er fólk þá svona elskt að snjó?
Líklega er það vegna þess, að í skammdeginu verður svo miklu bjartara umhorfs en í lágskýjuðu veðri og rigningu.
Og fátt er fallegra en tré þar sem greinarnar svigna undan snjónum eins og blasti svo víða við í dag.
Frostið fór að víðu niður í 10 stig en jólasvipurinn á umhverfinu margbætti það upp.
Jólin minntu á sig í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Alvöru kuldi er mínus 274 gráður. Allt þar fyrir ofan er hiti.
Björn J. Guðjohnsen (IP-tala skráð) 29.11.2015 kl. 12:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.