18.3.2016 | 13:12
"Bleikir akrar / baggar og slegin tún..."?
"Bleikir akrar og slegin tún" eru fleyg orð sem höfð eru eftir Gunnari á Hlíðarenda um fegurð Fljótshlíðar.
Þessi orð lýsa vel fegurðarskyninu, sem nytjahyggja bænda fóstraði á Íslandi.
En ólíklegt er að hinn bleiki litur akranna Gunnars hafi verið hinn sami og á að prýða rúlluplastbaggana sem Sláturfélag Suðurlands ætlar að bjóða til sölu í ár og hvort nútíma vegfarendum muni þykja þeir svo fallegir að þeir falli inn í íðilfagra heildarmynd Íslands.
Baggar hafa hingað til verið annað hvort hvítir eða grænir, en hvort tveggja eru þekktir litir í íslenskuu landslagi, - hinn hvíti litur jökla og skafla og hinn græni litur gróins lands.
Ef halda á uppi ummælum Gunnars ætti frekar að bjóða upp á svipaðan lit og var og er á ökrum, þegar þeir taka slíkan lit á sig.
Bleikir baggar prýða haga í sumar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Verulega verður steikt,
vitlaus bleikur litur,
SS hefur eitur reykt,
ansi Gunnar bitur.
Þorsteinn Briem, 18.3.2016 kl. 14:26
Bleiki liturinn á rúlluplastinu vísar ekki til ummæla Gunnars á Hlíðarenda.
Hægt mun verða að kaup rúlluplast með þessum lit í vor. Verð þeirra mun verða nokkuð hærra en plasts í "hefðbundnum" lit og mun sá aukakostnaður renna að fullu til Krabbameinsfélagsins.
Enginn bóndi mun verða neyddur til kaupa á plasti í þessum lit, en kjósi hann að styrkja Krabbameinsfélagið er þetta ágætis leið til þess.
Það er því vísun í Krabbameinsfélagið og það góða starf sem þar er unnið sem bleiki liturinn vísar og er sú vísun sótt í önnur slík verkefni sem styrkja Krabbameinsfélagið.
Gunnar Heiðarsson, 18.3.2016 kl. 15:56
"Þó bleiku plastrúllurnar séu þannig eilítið dýrari, eða 12.900 krónur miðað við 10.950 krónur í tilfelli grænu og hvítu eða 10.800 í tilfelli svörtu, þá er metraverð bleiku rúllanna talsvert ódýrara en hinna, samkvæmt útreikningum mbl.is."
Þorsteinn Briem, 18.3.2016 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.