18.3.2016 | 21:03
Löngu tímabærar aðgerðir.
Álagið á Hæstarétt Íslands, sem hefur skapast vegna málafjöldans, sem kemur fyrir réttinn, hefur lengi verið þess eðlis, að á stundum hefur það ógnað réttarfarinu hér á landi og skaðað trúverðugleika réttarins.
Því er það fagnaðarefni þegar stigið er skref í þá átt að stofnað verði millidómsstig sem taki þetta mikla álag að hluta til sín.
Vöntun á slíku millidómsstigi var allmikið rætt í stjórnlagaráði en ákveðið að fastnegla ekkert í þeim efnum heldur láta löggjafarvaldinu það eftir að koma á umbótum.
Mælti fyrir stofnun Landsréttar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ómar. Er stjórnlagaráð ekki búið að senda nýju "Stjórnarskrá Íslands" til Brussel?
Án heiðarlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu um allar svikagreinar þeirrar Stjórnarskrár sjálfstæðis-afsalskónganna íslensku og Brestastýrðu?
Þeir eru kannski of margir, stjórnarskrár-höfundafræði-snillingarnir, sem ekki hafa enn viðurkennt sín svikaverk gagnvart lýðræðiskosningabærum upplýstum einstaklingum á Íslandi?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.3.2016 kl. 00:00
Ég vonast eftir heiðarlegu svari?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.3.2016 kl. 00:02
Búið og gert.
Hún þótti illa þýdd, óskiljanleg og með ólíkindum illa undirbúin.
Eitthvað sem fjölmiðlar voru ekki til í að ræða ...
L. (IP-tala skráð) 19.3.2016 kl. 02:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.