18.5.2016 | 23:42
Hvers vegna ekki fyrr fimm stjörnu hótel?
Loksins hefur fyrsta fimm stjörnu hótel landsins litið dagsins ljós. Að vísu ekki heil bygging heldur efsta hæð hótels.
Nú hafa verið ýmis svo góð hótel á Íslandi að ætla hefði mátt að eitthvað af þeim hlyti að vera fimm stjörnu.
Ein skýringin á þessu , sem ég hef fengið hjá eiganda afar góðs hótels, er sú að það sé betra að vera með fjögurra stjörnu hótel, sem er svo gott, að gestirnir verða undrandi yfir því að stjörnurnar séu ekki fimm og gefa hótelinu því gott orðspor, heldur en að vera með fimm stjörnu hótel, þar sem lítið má út af bregða til að hótelið missi þessa einu stjörnu, sem gerir gæfumuninn.
Fyrsta 5 stjörnu hótel landsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég hélt að sundlaug væri eitt af þeim skilyrðum, sem þarf að uppfylla, fyrir fimm stjörnur, en eflaust hefur það eitthvað breyst. Er þetta ekki frekar fimm stjörnu hæð?
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 19.5.2016 kl. 00:11
Hotel rating
Þorsteinn Briem, 19.5.2016 kl. 15:33
21.8.2015:
"Lúxushótelið Marriott Edition, sem stendur til að reisa við Hörpu, er ekki fyrsta fimm stjörnu hótel landsins, eins og fram kemur á mbl.is.
Þar kemur fram að hótelið verði hið glæsilegasta. Þar verða 250 herbergi auk veislu- og fundarsala, fjölga veitingastaða og heilsulind.
Þessi fréttaflutningur er gagnrýndur á vef Grindavíkurbæjar. Þar er bent á að til stendur að opna fyrsta fimm stjörnu hótel landsins við Bláa lónið árið 2017 - Marriott Edition hótelið á hins vegar ekki að opna fyrr en árið 2019."
Þorsteinn Briem, 19.5.2016 kl. 15:45
1.11.2013:
Ferðaþjónusta orðin stærsta starfsgreinin í Reykjanesbæ
Þorsteinn Briem, 19.5.2016 kl. 16:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.