19.5.2016 | 16:26
Þjóðir í hlekkjum hugarfarsins.
Baldur Hermannsson gerði athyglisverða sjónvarpsþáttaröð fyrir um aldarfjórðungi sem hét "Þjóð í hlekkjum hugarfarsins og fjallaði um þjóðfélagsástandið á Íslandi á síðustu öldum.
Áhrif olíualdarinnar á þjóðir heims eru svo yfirþyrmandi, að nota má orðalagið "hlekki hugarfarsins" um það mál.
Þrátt fyrir ráðstefnur og fundi í allar götur frá ráðstefnuni í Ríó 1992, samþykktir og viljayfirlýsingar, miðar þjóðum heims lítt úr hlekkjum hugarfars olíuvinnslunnar.
Nærtækt dæmi um það eru Norðmenn og Íslendingar sem enn hafa ekki brotist út úr viðjum í þessum efnum, heldur halda því áfram í sameiningu að gefa leyfi til borana og rannsókna og vinnslu á nýjum olíusvæðum norðan heimsskautsbaugs.
Í blaðagrein þáverandi íslensks ráðherra um rannsóknarleyfi á Drekasvæðinu var ekki orð um vinnsluleyfið í fyrirsögn, heldur varð að leita að tveimur orðum um það, "..og vinnslu.." aftarlega í greininni.
Ráðherrann í næstu stjórn á undan stærði sig af því að vera olíumálaráðherra Íslands.
Báðar þjóðir fela sig á bak við það, að í kröfum um að minnka notkun jarðefnaeldsneytis er vinnsla jarðefnaeldsneytis ekki innifalin og báðar stefna að því að berja sér á brjóst og monta sig fyrir skerf sinn umhverfismálum.
Sem gerir það siðleysi enn meira en ella að stunda rányrkju á kostnað komandi kynslóða með tvíþættum afleiðingum: ´Ástandi lofthjúpsins og velta því yfir á afkomendur okkar að vinna úr þeim hrikalegu viðfangsefnum sem sóun auðlinda jarðar hefur í för með sér.
Frændþjóðirnar við Norður-Atlantshaf eru þjóðir í hlekkjum hugarfarsins, því miður.
![]() |
Veita umdeild olíuvinnsluleyfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enda þótt olía frá gríðarstóru olíuskipi, sem sykki eða strandaði hér við Ísland, og jafnvel fleirum en einu, legði ekki fiskistofna hér í rúst, fáum við Íslendingar hátt verð fyrir íslenskan fisk erlendis meðal annars vegna þess að fiskurinn er úr hreinu hafi.![]()
Og fiskistofnar hér við Ísland eru endurnýjanleg auðlind en olían ekki.
Þorsteinn Briem, 19.5.2016 kl. 17:04
Fari mikil olía í sjóinn hér við Ísland frá gríðarstóru olíuskipi, eða -skipum, gæti olían lagt stærstu nytjastofna okkar Íslendinga í rúst áskömmum tíma.![]()
Hrygningarstöðvar þorsks eru aðallega við Suðurland og Suðvesturland og þaðan berast afkvæmin með hafstraumum á Vestfjarðamið.
Og hafstraumarnir fara einnig norður fyrir landið.
Þorsteinn Briem, 19.5.2016 kl. 17:06
Deepwater Horizon oil spill 20 April-15 July 2010
Þorsteinn Briem, 19.5.2016 kl. 17:08
Exxon Valdez oil spill
18.9.2013:
Olíuskip á rangri siglingaleið hér við Ísland
Þorsteinn Briem, 19.5.2016 kl. 17:09
20.8.2012:
Dýrasta bensín í heimi í Noregi
Þorsteinn Briem, 19.5.2016 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.