2.6.2016 | 05:42
Furðu langvinnt og stöðugt óvenjulegt ástand.
Í hverjum mánuði eftir annan hafa margir búist við að fylgi flokkanna, einkum Pírata, færi að breytast.
Annað er uppi á teningnum. Sáralitlar breytingar mánuð eftir mánuð og hið mikla fylgi Pírata hefur nú varað í á annað ár.
Þetta hleypir ákveðinni spennu í stjórnmálin, því að fylgishlutföllin eru svo stórkostlega ólík því sem þau hafa verið margra áratuga skeiðs fjórflokksins.
Þó hafa komið lægðir fyrr hjá krötum, og má sem dæmi nefna 10,5% fylgi í kosningunum 1971 og allt niður í rúmlega 1% í Reykjavík nokkrum mánuðum fyrir kosningarnar 1995, þegar flokkurin fékk á endanum ekki nema rúmlega 11,4 prósenta fylgi upp úr kjörkössunum.
Sjálfstæðisflokkur og Píratar stærstir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þorsteinn Briem, 2.6.2016 kl. 07:06
Sá í dag að Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi er byrjaður að nota reiðhjólahjálm.
Þorsteinn Briem, 2.6.2016 kl. 17:00
Hjálmar byrjaður að nota hjálm sem er hið besta mál.
Ætli Dagur taki það sér til fyrirmyndar og hætti í kvöld?
Guðmundur Ásgeirsson, 2.6.2016 kl. 19:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.