4.6.2016 | 19:02
Gilda orðin "klofin eftir kyni?" um Trump og Clinton? Jú, auðvitað.
"Klofin eftir kyni" er fyrirsögn á helstu upplýsingum nýrrar skoðanakönnunar um Donald Trump og Hillary Clinton. Um það gæti gilt þessi staka:
Nýjast er að frétta frá þeim,
frú og herra´og og skýrist brátt,
að "klofin eftir kyni" hjá þeim
kunni að vera á tvennan hátt.
Klofin eftir kyni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Edit: Klofinn eftir kyni er fyrirsögn nýrrar skoðanakönnunar um Donald Trump og Hillary Clinton. Um það gæti gilt þessi staka.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 4.6.2016 kl. 19:42
Donald Skrattans dregur taum,
drullu er hann sokkur,
elskar Trumpsins orðaflaum,
allur djöflaflokkur.
Þorsteinn Briem, 5.6.2016 kl. 00:12
"Klofin eftir kyni" er óheppileg fyrirsögn, þegar hún stendur ein og sér.
Hún getur þýtt að klofin þeirra séu misjöfn eftir kyni.
Ómar Ragnarsson, 5.6.2016 kl. 10:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.