11.8.2016 | 13:24
Miskunnarlauar kröfur staðalímyndanna.
Alls konar kröfur varðandi líkama fólks og útlit, sem koma heilbrigði ekkert við, hafa vaðið uppi lengi og fætt af sér miskunnarlausa og ósanngjarna gagnrýni á þær sálir, sem hafa fæðst inn í þessa líkama.
Fólk á að vera í útliti í samræmi við einhverjar tískukröfur, annars er því úthúðað.
Ansi langt er gengið þegar keyrð er af stað hörð gagnrýni á það hvernig fimleikakona, sem varð númer 31 í keppni bestu fimleikakvenna heims, er vaxin.
Í þessari gagnrýni er hún skömmuð fyrir að vera allt of þung, 45 kíló!
Afsakið, ég sé ekkert athugavert við útlit þessarar mexíkósku konu, nema síður sé.
Umræðan fer út á tún,
að hún þurfi´í megrun.
Aðalatriðið er að hún
þurfi´ekki að fara´í fegrun.
![]() |
Hún hefði átt að fara í megrun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Ómar, ég er hjartanlega sammála þér, 45 kíló er ekki mikið þó hún sé lítil.
Kær kveðja.
Helgi Þór Gunnarsson, 11.8.2016 kl. 17:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.