10.1.2017 | 09:00
Hvernig væri að skoða hliðstæða staði erlendis?
Okkur Íslendingum hættir til þess að halda að "séríslenskar aðstæður" séu einstæðar svo víða að það þurfi að finna upp hjólið varðandi hvaðeina.
Að sönnu hefur hver staður vissa sérstöðu, en það á ekkert endilega frekar um íslenska staði en erlenda.
Á vesturströnd Írlands eru til dæmis fræg fuglabjörg, beggja vegna Miklagljúfurs í Bandaríkjunum, við Væringjafoss í Noregi eru frægir þverhníptir útsýnisstaðir, og í Yellowstone þjóðgarðinum eru viðkvæm en jafnframt hættuleg hverasvæði.
Bryce Canyon í Bandaríkjunum er hrikalegt svæði með gönguleiðum og ótal stöðum, þar sem hægt er að fara sér að voða.
Preikestolen við Lysefjord í Noregi er dæmi um afar hrikalegan stað.
Hvernig væri nú að senda svo sem eins og einn eða tvo Íslendinga í sérstaka ferð til þess að skoða þessa staði?
Eða höfum við ekki efni á öðru en að setja alla okkar peninga í að græða nokkur hundruð milljarða í viðbót á erlendu ferðamönnunum?
Banna göngu að sjó í Kirkjufjöru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við græðum ekki bara á þeim. Við gerum grín að þeim líka þegar þeir eru dauðir. Auglýsum það á internetinu og köllum Reynisfjöru Chinese takeaway. Við kunnum svo sannarlega að skapa okkur sérstöðu.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 10.1.2017 kl. 09:09
Helsti gallinn við þessa hugmynd er að á þessum stöðum fer fólk sér að voða. Aðferðirnar til að koma í veg fyrir slysin eru vel þekktar og það þarf ekkert að fara og sjá. Hafirðu spurningar þá dugar oftast netleit og að senda eMail. Aðferðirnar bara virka hvergi þar sem fólk ætlar yfir girðingar, hlustar ekki á aðvaranir og virðir ekki nein bönn.
Takist okkur að koma í veg fyrir að ferðamenn fari sér að voða þá höfum við að sönnu skapað "séríslenskar aðstæður". Því það er óþekkt fyrirbæri á öllum ferðamannastöðum.
Hábeinn (IP-tala skráð) 10.1.2017 kl. 09:15
17.2.2016:
"Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að umræðan um fjármögnun innviða ferðaþjónustunnar sé á villigötum.
"Hvernig stendur á því að stjórnmálamenn velti fyrir sér af hverju þurfi að eyða fjármunum í ferðaþjónustuna?," spurði hún á fundi sem Íslandsstofa boðaði til í morgun um samstarf og markaðssetningu erlendis á árinu 2016.
Helga sagði að stjórnmálamönnum ætti að vera ljóst að um góða fjárfestingu sé að ræða sem muni skila sér margfalt til baka.
Hún nefndi að innan 15 ára geti gjaldeyristekjur Íslands í ferðaþjónustunni numið svipaðri tölu og heildargjaldeyristekjur þjóðarinnar eru í dag.
Einnig sagði Helga að áætlað sé að gjaldeyristekjurnar í ferðaþjónustunni hafi aukist um 100 milljarða króna frá árinu 2013 til 2015.
"Stundum finnst mér eins og stjórnmálamenn séu ekki tilbúnir til að samþykkja þennan nýja veruleika," sagði hún.
"Það þarf að byggja upp innviði fyrir þessa atvinnugrein eins og aðrar.
Uppbyggingin nýtist okkur öllum vel.""
Umræðan um fjármögnun innviða ferðaþjónustunnar er á villigötum - Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Þorsteinn Briem, 10.1.2017 kl. 09:35
Hef ekki heyrt um meiri hrakfallabálk en Ómar Ragnarsson og stórmerkilegt að þessi maður sé enn á lífi.
En öll hrakföllin eru væntanlega öðrum að kenna en honum sjálfum.
Þorsteinn Briem, 10.1.2017 kl. 09:49
Ég legg til að ferðaþjónustuaðilar setji sig í samband við eigendur Krua Thai á Skólavörðustíg og fái að skoða innréttingarnar í Fatabúðinni. Gestir gætu í leiðinni velt fyrir sér rasismanum í þjóðarsálinni.
http://www.ruv.is/frett/vernda-tharf-innrettingar-fatabudarinnar
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 10.1.2017 kl. 10:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.