20.1.2017 | 16:38
Hvað um þorramatinn?
Það eru engar smábreytingar sem hafa orðið á mataræði Íslendinga á innan við öld. Nú er rætt um vaxandi óhollustu hjá okkur, einkum í neyslu á hvítasykri og fitu og mat, sem sumir hafa kallað ruslfæði.
Þorrinn byrjar í dag og þorrablótin þar með. Fróðlegt væri að vita hver hollusta þess matar er, sem kallaður er samheitinu þorramatur.
Við skruppum nokkur, sem erum í hópi söngfólks frá sjötta áratugnum, sem kallar sig Frumherja rokksins, í hljóðver í fyrrakvöld og sungum einmitt um þennan mat og þorrablótin.
Lagið heitir "Meiri háttar þorrablót." Grétar Örvarsson sá um hljóðfæraleik og útsetningu, en í framhaldi af þessu setti Friðþjófur Helgason saman myndband, sem sjá má á facebook-síðu minni.
Óhollusta í vexti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.