29.4.2017 | 09:50
Raunhæfur listi. Vantar smáaletrið í auglýsingar á rafbílum?
Leitun er að landi þar sem það liggur beinna við en hér að draga úr notkun á bílum knúnum jarðefnaeldsneyti. Að því ætti því að stefna ötullega.
En vanda þarf til þessara orkuskipta svo að ekki komi bakslag í þau vegna ónógra upplýsinga mikilvægusu atriði málsins, svo sem um mismunandi gerðir rafbíla.
Eitt atriðið felst í því að birta raunhæfar tölur um drægni rafbíla en á það skortir hér á landi.
Hér er auglýst hámarks drægni við bestu erlendu aðstæður í miklu hlýrra loftslagi en hér er.
Loftkuldinn hefur nefnilega tvíþætt áhrif: 1. Drægni rafhlaðanna minnkar í kulda. 2. Miðstöðvar í bílunum taka til sín lygilega mikla orku.
Til viðbótar má bæta við, að með árunum minnkar drægnin með notkun rafhlaðanna um allt að 20%.
Í auglýsingum um drægni rafbíla þyrfti að vera í það minnsta vísað til smáaleturs þar sem sagt væri, að drægnin sé miðuð við bestu hugsanlegu aðstæður og sé oftast mun minni en auglýstar tölur um hámarksdrægni, svo að skakki jafnvel þriðjungi.
Sem dæmi má nefna að ekkert slíkt er að sjá á nýlegri heilsíðuauglýsingu á Nissan Leaf með 30 kílóvattstunda rafhlöðum, heldur fullyrt það eitt, að drægnin sé 250 kílómetrar.
Hingað til hafa bílar af þessari gerð verið seldir með 24 kílóvattstunda rafhlöðum sem ætti því að gefa allt að 200 kílómetra drægi.
En svo háttar til að ég á vini, sem eiga slíka bíla, og segja að raunveruleg drægni sé 40 prósent minni, þannig að til þess að komast á milli Reykjavíkur og sumarbústaðar í Rangárþingi, þurfi að vanda sig við að verða ekki rafmagnslaus.
Þar að auki er auglýst í auglýsingunni á Nissan Leaf, að hann sé með mestu drægni í sínum stærðarflokki, og er umboðið fyrir bílinn þó nýbúið að sýna bíl af svipaðri stærð, Renault Zoe, sem er með 40 kílóvattstunda rafhlöðu og það hefur líka umboð fyrir!
Að vísu aðeins minni en Nissan Leaf, en ekki svo miklu minni eða léttari að hann sé settur í annan stærðarflokk.
Í þeim gögnum sem ég hef lesið um þessi mál hefur ofangreint um drægnina komið skýrt fram og jafnframt það, að bandaríski staðallinn EPA, staðall umhverfisverndarstofnunar BNA, komist næst réttu drægi þar í landi. Hér birti ég því tölurnar frá þessari stofnun, sem bæði Neytendasamtökin og FÍB ættu að birta.
Þess má geta að á listann vantar Renault Zoe, sem samkvæmt þeim upplýsingum, sem ég hef séð, dregur nokkrum tugum kílómetrum lengra en Nissan Leaf. Listinn er miðaður við þá bíla sem eru á boðstólum á Bandaríkjamarkaði, en Tesla 3 er væntanlegur þar.
Efstu bílarnir á listanum hafa ekki enn komið á markað hér. BYD er kínverskur en þegar kominn til Ástralíu.
Þess má geta að frá Reykjavík í Staðarskála eru 163 kílómetrar. Aðeins tveir bílar í á listanum, sem nú eru hér á markaði, komast þá leið alla án hleðslu samkvæmt þessum lista, og Leaf bíllinn aðeins 9 kílómetrum lengra.
Í praxis yrði að stoppa í Borgarnesi og hraðhlaða þar til öryggis. Og stansa næst annað hvort á Blönduósi eða í Varmahlíð ef leiðin liggur til Akureyrar.
Chevrolet Bolt EV. 383 kílómetrar.
BYD e6 346 "
VW e-Golf 2017 201 "
Hyundai tonic el 200 "
BMW i3 94 A-h 183 "
Nissan Leaf 30 kvst 172 "
Kia Soul EV 150 "
Mercedes-Benz B250e 140 "
Nissan Leaf 24 kvst 135 "
Fiat 500 e 135 "
Volkswagen e-Gólf 134 "
Chevrolet Spark EV 132 "
BMW i3 60 A-h 130 "
Ford Focus Electric 122 "
Smart electric drive 109 "
Mitshubishi i-MiEV 100 "
Ábyrgist 800 km drægi nýs vetnisbíls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gott Ómar. Það eru ekki allir tæknisinnaðir sem kaupa þessa bíla. Sem dæmi þú á eftir ætla ég að skreppa fram og til baka í bústaðir en samtals eru það um 200 km.Ég get ekki séð að það væri betra að vera alltaf með áhyggjur á rafmagnsleysi vegna kulda og vinds svo keypti mér Ford Kuga Diesel ásamt old faithful 1993 Ford E350 7.3 diesel sem enn má keyrað 500.000 Km eftir að hafa keyrt án vandamála í 190.000 km en ákvað að eiga hann eftir að gefast hreinlega upp á Nissan Navara problem Diesel með eilíft stífluðum kvarðakútum. Semsagt ekki rafmagnsbíla í flota minn. :-)
Valdimar Samúelsson, 29.4.2017 kl. 10:21
Í Noregi er reynslan sú að rafbíllinn er notaður innanbæjar en annar bíll utanbæjar. Þar með verður rafbíllinn númer eitt, af því að 80-90 prósent aksturs hjá flestu borgarfólki er innanbæjar.
Ómar Ragnarsson, 29.4.2017 kl. 10:54
17.9.2013:
""Við hjónin látum okkur ekki muna um að skreppa frá Reykjavík austur á Flúðir og það kostar aðeins 200-kall," segir Halldór Jónsson húsgagnabólstrari og Nissan Leaf-eigandi.
[Kostnaðurinn er því um tvær krónur á kílómetra.]
"Áður var þetta eldsneytiskostnaður upp á 5-6 þúsund krónur fram og til baka.
Eystra hleð ég bílinn yfir nóttina og þar er ég bara með 16 ampera öryggi en bíllinn er tilbúinn um morguninn.
Heima er ég hins vegar með hleðslustöð sem hleður rafgeyminn á 2½ klukkustund," segir Halldór Jónsson."
Kostar 200 krónur að aka Nissan Leaf frá Reykjavík austur á Flúðir
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 13:27
Meðalakstur einkabíla í Reykjavík er um 11 þúsund kílómetrar á ári, eða 30 kílómetrar á dag.
"Every US specification Nissan LEAF is backed by a New Vehicle Limited Warranty providing: [...] 96 months (í átta ár)/100,000 miles (eða 161 þúsund km.) Lithium-Ion Battery coverage (whichever occurs earlier)."
Nissan Leaf 2015
Og miðað við 11 þúsund kílómetra akstur á ári tekur um fimmtán ár að aka 161 þúsund kílómetra.
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 13:29
Hér á Íslandi er fjöldinn allur af einkabílum eingöngu notaðir á höfuðborgarsvæðinu, enda tveir bílar á mörgum heimilum.
Og einkarafbíla sem eingöngu eru notaðir á höfuðborgarsvæðinu nægir yfirleitt að hlaða á nokkurra nátta fresti, þar sem meðalakstur einkabíla í Reykjavík er 30 kílómetrar á dag.
Að sjálfsögðu er einnig nauðsynlegt að setja sem fyrst upp hleðslustöðvar á landsbyggðinni fyrir alls kyns rafbíla, til að mynda rafrútur sem ekið verður um allt landið.
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 13:31
Hefðbundnar bifreiðar nota mikið af rafbúnaði sem knúinn er af sprengihreyfli en honum fylgir margvíslegur og flókinn búnaður og mengunarskapandi útblástur.
Rafmótorinn hefur hins vegar einungis fáeina hreyfanlega hluti í stað hundruða.
Í rafbíl eru slitfletir margfalt færri og hitamyndun minni, sem skilar sér í lengri endingu.
Rafmótor þarf minna viðhald en hefðbundin bílvél sem þarfnast olíu- og síuskipta, kertaskipta, ventlaskipta, tímareimaskipta, pústviðgerða, viðhalds á vatnsdælu, eldsneytisdælu, rafal og öðru sem fylgir flóknum sprengihreyfli.
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 13:34
Í fjölmörgum fylkjum Bandaríkjanna verður miklu kaldara á veturna en hér á Íslandi.
17.8.2016:
"Hægt væri að skipta út allt að 87% bandarískra bíla með ódýrum rafmagnsbílum jafnvel þó að ökumenn þeirra gætu ekki hlaðið þá yfir daginn.
Þetta er niðurstaða rannsakenda við MIT-háskóla og Santa Fe-stofnunina sem könnuðu aksturshegðun Bandaríkjamanna og ýmsa þætti sem hafa áhrif á drægi rafbíla."
Óttinn við drægi rafbíla ofmetinn
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 13:37
9.3.2017:
"Á Sauðárkróki bruna misháværir bílar eftir Skagfirðingabrautinni en einn sker sig þó úr með afgerandi hætti, rafsendibíllinn sem veitingaþjónustan Grettistak gerir út."
"Eiður Baldursson, annar eigenda Grettistaks, keypti nýjan rafsendibíl úr verksmiðjum Nissan, E-NV200, í millistærðarflokki.
Eiginþyngd sendibílsins er 1.641 kíló, lengdin rúmir 4,5 metrar og breiddin rétt rúmir 2 metrar með spegla úti."
"Eiður segir að rafsendibíllinn hafi reynst vel í þau tæpu tvö ár sem fyrirtækið hefur haft bílinn í sinni þjónustu.
"Við erum að keyra þrjátíu til fjörutíu kílómetra að jafnaði á dag og þá þurfum við ekkert að stinga sendibílnum í hleðslu nema yfir nóttina.
Við höfum verið með veislur í Varmahlíð og getum farið á bílnum þangað."
"Rekstrarkostnaðurinn er nær enginn og bifreiðagjöldin um sex þúsund krónur á ári.
Maður finnur helst að drægnin minnki þegar frostið fer í tíu stig."
Veitingaþjónusta á Sauðárkróki keypti rafsendibíl fyrir tveimur árum án þess að prófa bílinn fyrst en hann hefur reynst vel
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 13:43
Hvað kostar rafmagnshleðslan á hvern ekinn km - nú eða á hverja þús.ekna km?
Sennilega er það eina viðmiðunin sem bíleigendur myndu skilja til samanburðar við bensín og diesel.
Kolbrún Hilmars, 29.4.2017 kl. 13:49
9.3.2017:
"Orka náttúrunnar (ON) og N1 ætla í sameiningu að reisa hlöður fyrir rafbíla meðfram helstu þjóðvegum landsins.
Stjórnendur fyrirtækjanna hafa skrifað undir samkomulag um að hlöður ON rísi á afgreiðslustöðvum N1 víðs vegar um landið.
ON hefur þegar reist þrettán hlöður fyrir rafbíla í samstarfi við ýmsa aðila, þar á meðal N1."
"ON hefur einnig aukið mjög upplýsingagjöf til rafbílaeigenda með útgáfu smáforritsins ON Hleðsla fyrir Android og iPhone.
ON Hleðsla veitir meðal annars upplýsingar um vegalengd í næstu hlöðu, hvar hún er, hvaða hleðslubúnaður er í henni og hvort hún er laus eða upptekin.
Í tilkynningu segir að N1 reki 95 stöðvar á landinu og þar með víðtækustu þjónustu hér landi fyrir bifreiðaeigendur."
"Um 20 mínútur tekur að hlaða rafbíl og mikilvægt fyrir ökumann og farþega að geta slakað á í notalegu umhverfi og fengið sér kaffibolla eða aðra hressingu á meðan bíllinn er í hleðslu."
Orka náttúrunnar (ON) og N1 með hleðslustöðvar fyrir rafbíla við þjóðvegi landsins
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 13:57
3.3.2017:
"Vegna ársins 2016 styrkti Orkusjóður sex aðila um 66,7 milljónir króna til að setja upp sautján hraðhleðslustöðvar og þrjár minni á eftirtöldum stöðum:
Skjöldólfsstöðum, Bláa lóninu, Landeyjahöfn, Vestmannaeyjum, Egilsstöðum, Höfn, Staðarskála, Fáskrúðsfirði, Djúpavogi, við Jökulsárlón, í Skaftafelli, Kirkjubæjarklaustri, Vík, Hellu, Flúðum, Geysi í Haukadal, Hveragerði, Blönduósi, Varmahlíð og Reykjahlíð.
Vegna ársins í ár hafa tíu aðilar verið styrktir um 66 milljónir króna til að setja upp sextán hraðhleðslustöðvar og tvær minni:
Garðabær, Hafnarfjarðarbær, Isavia, N1, Olíuverslun Íslands, Orka náttúrunnar (ON), Orkubú Vestfjarða, Reykhólahreppur, Skeljungur og Vistorka.
Loks hefur Orkusjóður ákveðið að styrkja tólf aðila til að setja upp níu hraðhleðslutæki og 58 minni.
Þar af er Reykjavíkurborg styrkt til uppsetningar á þrjátíu minni hleðslustaurum víðs vegar um borgina.
Sex hraðstöðvarnar af níu verða settar upp í Reykjavík á vegum Orku náttúrunnar, Olíuverslunar Íslands og Skeljungs.
Á þessu lokaári styrktarverkefna Orkusjóðs verða auk þessa settar upp tólf hleðslustöðvar víða á Austurlandi, ein í Grindavík, þrjár í Mosfellsbæ, á Húsafelli, Reykholti, við Seljalandsfoss, í Norðurfirði á Ströndum, þrjár á Selfossi, ein á Stokkseyri, Eyrarbakka, Raufarhöfn, við Dettifoss, á Laugum, Skagaströnd og Dalvík."
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 14:00
Meðalstórt heimili í Reykjavík notar um fjögur þúsund kWst raforku á ári.
Raforka vegna rafbíls á heimilinu er minni en þriðjungur af þeirri notkun.
Einkarafbíla sem eingöngu eru notaðir á höfuðborgarsvæðinu hér á Íslandi nægir yfirleitt að hlaða á nokkurra nátta fresti, þar sem meðalakstur einkabíla í Reykjavík er 30 kílómetrar á dag.
Og öll heimili nota einungis 5% raforkunnar hér á Íslandi.
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 14:04
3.4.2017:
""Ég held að við þurfum ekki að reisa eina einustu virkjun.
Það sem rafbílar taka er mjög lítið og spá segir okkur að innan 15-20 ára verði komnir hundrað þúsund rafbílar í landinu.
Þessir bílar þurfa ekki nema 1,5% af því rafmagni sem framleitt er í landinu í dag og til að fullnægja því höfum við 10-15, jafnvel 20 ár.
Þannig að við þurfum í rauninni ekki að virkja neitt til að skipta yfir í rafmagn í umferðinni," segir Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur."
Þarf ekki nýjar virkjanir fyrir rafbílavæðinguna segir forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 14:07
11.4.2017:
"Þegar bílasala fyrir janúar og febrúar í ár í Noregi var gerð upp kom í ljós að nokkuð jafnt er á með raf- og tvinnbílum annars vegar og bílum með brunavél hins vegar hvað vinsældir varðar.
Hreinir rafbílar voru 35,5% af sölu nýrra bíla fyrstu tvo mánuði ársins og sé tvinnbílum bætt við er hlutfall vistvænu bílanna 49,6% af nýskráningum."
Hreinir rafbílar rúmlega þriðjungur af sölu nýrra bíla í Noregi
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 14:26
30.1.2017:
Electric vehicle battery cost dropped 80% in 6 years
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 14:29
Steini #10 Er það málið að slaka á í notalegu umhverfi í 20 mínútur og kaupa veitingar? Jafnvel fyrir farþegana líka.
En hvað ef þú ert í biðröð, 3ji eða 4ði í röðinni, hversu miklar veitingar þarft þú þá að kaupa og hversu mikið verður þá vinnutapið?
Eða svefnleysið ef þú hefur aðeins tíma um miðjar nætur? Sé þarna fram á verulegan aukakostnað við eldsneytiskaupin - en var reyndar aðeins að forvitnast um hvað þau sjálf myndu kosta bíleigandann.
Kolbrún Hilmars, 29.4.2017 kl. 14:37
6.3.2017:
Fyrsta rafrútan komin hingað til Íslands
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 14:37
Hefir engin opnað upp harða diskinn sinn. Bíar allmennt þurfa fyllingu æa 400 ti 70 km fresti og hvað eru margar bensínstöðvar til að þjóna þeim. Einhver reiknis haus horfið á dæmið.
Rafmagnsbíll það ef hann ekur um landið þarf að hlaða á 200 km fresti og segjum að 5000 bílar þurfi hleðslu sem tekur 3 til 8 klukkutíma.
Er ekki augljóst að það verða að vera 5000 tengingar cirka í Vík í Mýrdal eða að staðarskála í Hrútafirði. og gisting fyrir einhver þúsund, eina máltíð á mann. Gleymum þessu nema sem borgarbíl eða Tvinn bíl.,
Ég meina.....og ég tala nú ekki um ef þetta er erlendis. Trump mun lækka verð bæði á Bensín og Dísel innan fárra ára. Alaska olían mun flæða yfir öll bandaríkin ásamt Japans
Valdimar Samúelsson, 29.4.2017 kl. 14:40
Það er einfaldlega ekki verið að selja rafbíla til að vera í stöðugum akstri á milli landshluta, enda eru langfæstir í slíkum akstri.
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 14:41
Ein létt spurning, hvað verður mikil mengurn til við förgun á rafhlöðunum?
Ef ég hef skilið rétt þá er BMW i3 úr karbonfíber eða kolefnisþráðum, er það ekki bara einn umhverfissóðaskapurinn í viðbót eins og öll plast og pappamálin?
Alfreð Dan Þórarinsson (IP-tala skráð) 29.4.2017 kl. 14:44
Rafaflið til að skila mér á rafreiðhjóli frá Akureyri til Reykjavíkur í ágúst 2015 kostaði 115 krónur.
Rafbíll eyðir ca 10 sinnum meira. Ætli þetta kosti ekki um 1100 krónur á slíkum bíl.
Ómar Ragnarsson, 29.4.2017 kl. 14:49
Hversu mikil mengun er af förgun á rafgeymum og öllu öðru í bensínbílum, svo og af daglegum útblæstri þeirra í borgum og bæjum?!
Hefðbundnar bifreiðar nota mikið af rafbúnaði sem knúinn er af sprengihreyfli en honum fylgir margvíslegur og flókinn búnaður og mengunarskapandi útblástur.
Rafmótorinn hefur hins vegar einungis fáeina hreyfanlega hluti í stað hundruða.
Í rafbíl eru slitfletir margfalt færri og hitamyndun minni, sem skilar sér í lengri endingu.
Rafmótor þarf minna viðhald en hefðbundin bílvél sem þarfnast olíu- og síuskipta, kertaskipta, ventlaskipta, tímareimaskipta, pústviðgerða, viðhalds á vatnsdælu, eldsneytisdælu, rafal og öðru sem fylgir flóknum sprengihreyfli.
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 14:56
Ómar, kr.1100 fyrir 600 km til Akureyrar? Minn núverandi bíll (diesel) eyðir uþb 19 lítrum; eða um kr.3700. Á móti sparast veitingakostnaður fyrir farþega og ökumann. Hvað kostar annars kaffibollinn hjá N1?
Kolbrún Hilmars, 29.4.2017 kl. 15:06
17.9.2013:
""Við hjónin látum okkur ekki muna um að skreppa frá Reykjavík austur á Flúðir og það kostar aðeins 200-kall," segir Halldór Jónsson húsgagnabólstrari og Nissan Leaf-eigandi."
Kostnaðurinn er því um tvær krónur á kílómetra.
Raforkukostnaðurinn á milli Reykjavíkur og Akureyrar er því að lágmarki 776 krónur.
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 15:07
Sumir ná því greinilega engan veginn að ekki er verið að selja rafbíla til að vera í stöðugum akstri á milli landshluta, enda eru langfæstir í slíkum akstri.
Að sjálfsögðu er verið að reisa hleðslustöðvar fyrir rafbíla víða hér á Íslandi fyrst og fremst fyrir akstur á viðkomandi stað en ekki á milli landshluta, rétt eins og bensínstöðvar.
Þar að auki eru tveir bílar á flestum heimilum.
11.4.2017:
Hreinir rafbílar rúmlega þriðjungur af sölu nýrra bíla í Noregi
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 15:25
Gott dæmi hjá Kolbrúnu og kannski 4 til 5 farþegar. Ég hafði ekki hugsað út þí það. Hvað segir Steini. auðvita passar þetta fyrir suma og sérstaklega í bæjar akstri.Mann koma samt til með að verða rafmagnslausir og þá bara verður góður busness hjá Vöku og þeim köllum. Ég var eindar búinn að hugsa þetta út ef það yrði skilda að nota rafmagns bila en hvað veit maður þegar umhverfisráðherrar eru að gróðurhúsa kynslóðinni. Ég kaupi mér 2ja til 3ja kílóvatta dísel rafstöð á hjólum og keyr hana á grænni dísel olíu.
Valdimar Samúelsson, 29.4.2017 kl. 15:31
Sumir ná því greinilega engan veginn að ekki er verið að selja rafbíla til að vera í stöðugum akstri á milli landshluta, enda eru langfæstir í slíkum akstri.
Að sjálfsögðu er verið að reisa hleðslustöðvar fyrir rafbíla víða hér á Íslandi fyrst og fremst fyrir akstur á viðkomandi stað en ekki á milli landshluta, rétt eins og bensínstöðvar.
Þar að auki eru tveir bílar á flestum heimilum.
"Við erum að keyra þrjátíu til fjörutíu kílómetra að jafnaði á dag og þá þurfum við ekkert að stinga sendibílnum í hleðslu nema yfir nóttina.
Við höfum verið með veislur í Varmahlíð og getum farið á bílnum þangað."
"Rekstrarkostnaðurinn er nær enginn og bifreiðagjöldin um sex þúsund krónur á ári.
Maður finnur helst að drægnin minnki þegar frostið fer í tíu stig."
Veitingaþjónusta á Sauðárkróki keypti rafsendibíl fyrir tveimur árum án þess að prófa bílinn fyrst en hann hefur reynst vel
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 15:41
Steini við skiljum þig vel en hleðslustöðvar eru ekkert bara heldur þurfa menn á Rafbílum að stoppa 2 til 3 sinnum oftar fyrir vegalengd venjulegra bíla. Tökum dæmið að það yrðu 5000 rafbílar á landsvísu í gangi þá höfum við minnst 15000 opp 35.000 hleðslutíma. Wake up man. 10 til 20 þúsund máltíðir.
Er virkilega engin eins vitlaus og ég að sjá þetta.
Valdimar Samúelsson, 29.4.2017 kl. 16:10
Kolbrún Hilmars, 29.4.2017 kl. 16:18
Einkarafbíla sem eingöngu eru notaðir á höfuðborgarsvæðinu nægir yfirleitt að hlaða á nokkurra nátta fresti, þar sem meðalakstur einkabíla í Reykjavík er 30 kílómetrar á dag.
Og hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru settar upp á fjölmörgum heimilum.
1.4.2017:
Hreinir rafbílar rúmlega þriðjungur af sölu nýrra bíla í Noregi
3.4.2017:
""Ég held að við þurfum ekki að reisa eina einustu virkjun.
Það sem rafbílar taka er mjög lítið og spá segir okkur að innan 15-20 ára verði komnir hundrað þúsund rafbílar í landinu.
Þessir bílar þurfa ekki nema 1,5% af því rafmagni sem framleitt er í landinu í dag og til að fullnægja því höfum við 10-15, jafnvel 20 ár.
Þannig að við þurfum í rauninni ekki að virkja neitt til að skipta yfir í rafmagn í umferðinni," segir Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur."
Þarf ekki nýjar virkjanir fyrir rafbílavæðinguna segir forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 16:31
Valdi Sam virðist ganga út frá því að jarðefnaeldsneyti verði á boðstólum um aldir og ævi. Ignorant og rugludallur.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 29.4.2017 kl. 17:00
Hér á Íslandi er einn bíll á hvern Íslending á öllum aldri og fjölmargir nota einkabíl eingöngu einu sinni eða í örfá skipti á ári til að aka í aðra landshluta, til að mynda í sumarfríum.
Á fjölmörgum íslenskum heimilum er því fleiri en einn einkabíll.
Og það sem hægt er að gera í Noregi í þessum efnum er einnig hægt hér á Íslandi.
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla verða hér í öllum bæjum og þorpum, til að mynda á bensínstöðvum, og á fjölmörgum heimilum, í bílageymslum og á vinnustöðum.
Hins vegar verða ekki margar bensínstöðvar á öllum þessum stöðum.
Og fleiri en ein hleðslustöð þar sem þörf er á því.
11.4.2017:
Hreinir rafbílar rúmlega þriðjungur af sölu nýrra bíla í Noregi
Þorsteinn Briem, 29.4.2017 kl. 17:36
"Jarðefnaeldsneyti", eða eitthvað sambærilegt, verður á boðstólum um aldir og ævi. Það þarf ekki að koma úr borholum. Það má rækta það á auðveldan hátt og ódýran og með minni mengun en raforka er framleidd með á flestum stöðum á jörðinni. Við Íslendingar njótum vissrar sérstöðu í rafmagnsmálum sem flestar aðrar þjóðir og megnið af mannkyni búa ekki við. Sérstaða okkar mun ekki ráða þróun í orkumálum heimsins. Fyrir stærstu þjóðir jarðar er rafmagnsbíllinn engin framför og dregur ekki úr mengun. Rafmagnsframleiðsla þar er mengandi. Stærsti kostur, og helsti tilgangur, rafmagnsbíla þar er að færa mengunina út úr borgunum.
Gústi (IP-tala skráð) 29.4.2017 kl. 17:38
"Jarðefnaeldsneyti", eða eitthvað sambærilegt, verður á boðstólum um aldir og ævi. Það þarf ekki að koma úr borholum. Það má rækta það á auðveldan hátt og ódýran og með minni mengun en raforka er framleidd með á flestum stöðum á jörðinni. Við Íslendingar njótum vissrar sérstöðu í rafmagnsmálum sem flestar aðrar þjóðir og megnið af mannkyni búa ekki við. Sérstaða okkar mun ekki ráða þróun í orkumálum heimsins. Fyrir stærstu þjóðir jarðar er rafmagnsbíllinn engin framför og dregur ekki úr mengun. Rafmagnsframleiðsla þar er mengandi. Stærsti kostur, og helsti tilgangur, rafmagnsbíla þar er að færa mengunina út úr borgunum.
Gústi (IP-tala skráð) 29.4.2017 kl. 17:38
https://www.youtube.com/watch?v=DhYL6gPWT2E
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 29.4.2017 kl. 18:30
Kolbrún nr 29. Við hjónin höfum efni á tveimur bílum, þ.e.a.s. við verðum að hafa tvo bíla vegna vinnu okkar. Lítill jeppi og smábíll. Var mjög freystandi að kaupa rafbíl fyrir konuna, - en þá vantar hleðslustöð. Við búuð í nýlegri blokk, en í bílakjallaranum en ekki gert ráð fyrir þessari framtíð. Hvenær verður þetta raunhæfur kostur fyrir venjulegt fólk?
Hörður Björgvinsson (IP-tala skráð) 30.4.2017 kl. 00:58
Hörður, einmitt. Að hafa ekki öruggan hleðslumöguleika heima fyrir rafbíla er frágangssök. Heimilin eru semsagt ekki undirbúin fyrir þessi orkuskipti. Auk þess er virðisaukaskattur af raforku til heimila 24%, sá sami og fyrir bensín og diesel. Engin gulrót þar heldur.
Kolbrún Hilmars, 30.4.2017 kl. 14:35
venjulegt fólk hringir bara i rafvirkja og lætur hann setja innstungu.það gerði ég firrir minn rafbil
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 2.5.2017 kl. 02:38
Lausnin er rafmagnshraðlest yfir hálendið til Akureyrar, og síðan áfram til Egilsstaða, það er framtíðin og myndi spara orku og stórminnka útblástur á landi og í lofti. Ísland er fyrir fólkið og athafnir þess.
Stefán Þ Ingólfsson, 2.5.2017 kl. 11:08
Helgi #38 - hvar býrð þú? Veistu ekki að tugþúsundir hér í borg búa þar sem ekki aðeins þarf innstungu heldur líka "hund" yfir fjölfarnar gangstéttir út á bílastæði við götur - þar sem ekki einu sinni er hægt að ganga að bílastæðinu sjálfu vísu?
Kolbrún Hilmars, 2.5.2017 kl. 13:34
Kolbrun ég var að svara venjulegum manni með bílakjallara
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 2.5.2017 kl. 21:39
Kolbrun ég bý ekki a Íslandi sem betur fer spáðu i þessu fyrirtækja eigendur réðu fólk til þess að reka fyrirtækið firrir sig svo eftir dálitin tíma ákváðu stjórnendur fyrirtækisins að selja sumum viðskiptavinum fyrirtækisins afurðir þess miklu ódýrara en eigendunum sjálfum.Væri ekki eðlilegt að segja þeim að taka pokann sinn
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 3.5.2017 kl. 02:18
Og til að bæta gráu ofan a svart er það leyndarmál hvað sumir viðskiptavinirnir borga firrir afurðina eigendur fyrirtækisins mega als ekki vita.þvílík svívirða
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 3.5.2017 kl. 05:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.