20.5.2017 | 00:40
Ekki unglingavandamál, heldur foreldravandamál?
Fyrir rúmum áratug var brotist inn í tvo bíla fyrir utan blokkina, sem ég bjó þá í um klukkan fjögur að morgni laugardags. Þetta var í júní og því björt nótt.
Þetta voru þrír unglingar og þeim tókst að koma öðrum bílnum í gang og þeysa burt á honum.
Bíllinn fannst síðar gereyðilagður við Hafnarfjörð. Engar bætur fyrir hann.
Niðurstaða lögreglunnar þar: Algengasta orsök þessa fyrirbæris: Foreldravandamál, - ekki unglingavandamál. Foreldrarnir farnir á helgarfylleríið, "skyldudjammmið" og drengirnir í reiðileysi á meðan.
Þegar ég var nýfluttur í hverfið þar sem ég bý nú, kom ég eitt sinn út að kvöldlagi og sá þá að nokkrir unglingar höfðu hópast í kringum lítinn bíl, sem ég á, og var einn unglingurinn að hoppa uppi á þaki hans, en hinir að taka sjálfur (selfies) af sér með skemmdarverkið í baksýn.
Unglingarnir hlupu allir í burtu þegar ég reyndi að hafa hendur í hári þeirra.
Hugsanlega var þetta sama gengið og hafði farið inn í verslun, gengið berserksgang og rústað hllum af glervarningi á metttíma, takandi sjálfur í leiðinni og síðan öll á bak og burt á örskotsstund.
Fyrir viku kom ég að bíl mínum skemmdum eftir þrjá unglinga sem höfðu verið með læti fyrir utan blokkina klukkan hálf fimm á laugardagsmorgni.
Hugsanlega hluti af genginu sem heldur vöku fyrir nágrönnum mínum á kvöldum og nóttum hinum megin í blokkinni. Prísa mig sælan að eiga ekki heima þeim megin.
Nágranni minn, sem býr í blokk, gegnt bílastæðinu sagði mér, að hann hefði vaknað við lætin í drengjum sem fóru um með með háreysti, en hefði ekki séð fyrr en eftir birtingu um morguninn, að þeir hefðu skemmt bílinn með því að hoppa uppi á vélarhlífinni og brjóta framrúðuna.
Ég hringdi á lögreglu en var sagt, að ég yrði að koma niður á stöð og gefa skriflega skýrslu.
Vitandi um fleiri atvik sem lögreglan hefur ekkert sinnt hér í hverfinu lét ég það vera.
Fannst, að ég hefði annað þarfara að gera, og veit nú, að löggan hefur nóg að gera vegna svipaðra mála annars staðar í borginni án þess að nokkur árangur náist, að því er sagt er skilmerkilega frá í frétt um það mál.
Sá um árið á lögreglustöð staflana af skýrslum vegna svipaðra mála, sem þar hrúgast upp.
"Áfengisbölið verður að hafa sinn gang" var einhvern tíma sagt. "Skyldudjammið" verður líka að hafa sinn gang, sem og unglingavandamál, sem eru í raun foreldravandamál.
Sparnaður og aðhald í löggæslu hefur líka verið talinn brýnn svo að meiri velta sé í þjóðfélaginu til "græða á daginn, grilla á kvöldin og "fara út á lífið og djamma á næturnar."
P. S. Svefnstyggi nágranninn er til alls vís, því að hann sýndi frábæra rannsóknarlögregluhæfileika fyrir nokkrum árum. Þá léku bensínþjófar lausum hala í hverfinu, en hann sá til þeirra og heyrði að vélin í bílnum, sem þeir voru á, var 318 kúbika V-8 vél frá Chrysler-verksmiðjunum og bíllinn Dodge Magnum.
Bílþjófarnir þrættu þegar löggan greip þá eftir tilvísan hins heyrnarnæma manns, en þegar í ljós kom að það var 318 kúbika V-8 Chrysler-vél í Dodge Magnum bílnum, féll þeim allur ketill í eld, gáfust upp og játuðu!
Þessi nágranni minn reyndist hafa lengi verið með gríðarlegan áhuga á amerísku bílvélum og bílum og kann margt annað fyrir sér, sem getur komið sér vel!
Ganga berserksgang í Langholtshverfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
1970, foreldrarnir ófæddir og fáir kunnu að grilla.
Hábeinn (IP-tala skráð) 20.5.2017 kl. 01:45
Ljott að heyra með bilinn þinn vinur minn,ekki gaman að svona (skemmdar)verkum vonandi fæst einhver til að laga þetta fyrir þig. En ekki falla i þann pytt að kenna foreldrunum um svona hegðun sem þessir drengir syndu af ser, það er sa sem fremur skemmdarverkið sem er hinn seki aldrei neinn annar.
Sigurður Andrés Jónsson, 20.5.2017 kl. 18:42
Hefur þú Sigurður, aldrei heyrt um uppeldi..og/eða uppeldisaðferðir ? - Það er alveg klárt mál að þarna er á ferðinni foreldravandamál þar sem að gerendur eru vanstilltir og jafnvel sjálfala. - Íslenskir unglingar eru agalausir, fá að komast upp með allt og bannað er að eiga tal við þá eða hvað sem er öðruvísi en að viðkomandi verði kærður "fyrir að hafa áreitt barn". - Þetta er að verða ógeðslegt þjóðfélag í þessum efnum og þyrfti að taka harðar á unglingum. Jafnvel setja upp unglingadómstól með viðeigandi hirtingu og samfélagsþjónustu til að aga þennan skríl.
Már Elíson, 20.5.2017 kl. 20:52
Unglingar og foreldrar þeirra eru besta fólk. Það er alltaf þetta 1% sem hagar sér eins og fífl og í öllum sköpuðum hlutum.
Ragna Birgisdóttir, 21.5.2017 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.