11.7.2017 | 09:30
Varasöm alhæfing í heitinu sófakynslóð.
Hugtakið sófakynslóð varð til í kringum síðustu aldamót ef ég man rétt, og núna tala margir um að með tilkomu netbyltingarinnar og neyslu- og græðgishugsunar eigi það við að nefna hugtakið "Hótel mamma."
Þetta er of einföld alhæfing og vinkonurnar Guðrún Veiga Guðmundsdóttir og Hilda Karen eru gott dæmi um það, að í fjölda ungs fólks bærist jákvæður baráttuandi í svipuðum stíl og hjá aldamótakynslóðinni um aldamótin 1900.
Hótel mamma getur nefnilega verið hluti af stefnufestu og því að setja markið hátt, og sprenging í þátttöku ungs fólks í heilsu- og líkamsrækt í bland við útivist gangandi eða á hjólum, er gott dæmi um slíkt.
Og horfa fram á hamingjudag - hress við skulum syngja það lag! eins og segir í einu laganna á plötunni Hjarta landsins - náttúran og þjóðin.
Þó að það þurfi að bera hana í mark | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.