26.7.2017 | 15:44
"Nú er besta barnið sótt..." "Höfum í búri einn skeggjaðan..."
Nýjasta tækni gerir það mjög ólíklegt að mannkynið geti dáið út vegna ófrjósemi, eins og greint er frá í tengdri frétt á mbl.is.
Nefna má tvö ljóðræn dæmi í þá veru að sefa áhyggjur.
Þegar fyrsta íslenska konan átti viðskipti við danskan sæðisbanka var því slegið upp sem stórfrétt í DV hve vel hún lét af þessum viðskiptum sínum.
Séra Emil Björnsson var þá fréttastjóri og var slyngur hagyrðingur.
Á fréttafundi kastaði hann fram þessari stöku:
Hreðjum Íslands hrakar ótt
hermir konan unga.
Nú er besta barnið sótt
beint í danska punga.
Í tví- og kappsöng kvenna og karla hér um árið á skemmtunum hjá mér flugu skeytin á milli kynjanna í fjöldasöngnum "Kynin kljást".
Viðureignin var tvísýn þar til konurnar gripu til úrslitaráðsins, svo hljóðandi:
Með frjóvgunartækninni öruggt það er
að úrelta gerum við karlana hér.
Við höfum í búri einn skeggjaðan skarf
og skreppum í ísskápinn ef að með þarf.
Þegar fyrsta
Mannkynið gæti dáið út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er ekki ónýtt fyrir Framsóknarflokkinn að eiga gamla afganga í frystinum.
Þorsteinn Briem, 26.7.2017 kl. 17:52
Ragna Birgisdóttir, 26.7.2017 kl. 18:35
Hagorðum íslenskum hrakar ei ótt...?
Ómar Ragnarsson, 26.7.2017 kl. 19:06
Haha..með ráðum gert Ómar minn, er búin að vera að lesa skáldsögur Halldórs Laxness og málfræði snillingsins fer í taugarnar á mér....en sögurnar frábærar.Leirburður minn hér að ofan er bara til gamans gerður ;)
Ragna Birgisdóttir, 26.7.2017 kl. 20:30
Hver er munurinn á málfræði Halldórs og okkar hinna?
Þorvaldur Sigurdsson (IP-tala skráð) 27.7.2017 kl. 09:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.