27.9.2017 | 01:17
Ný iðuköst í Framsóknarflokknum.
Komandi klofningur í Framsóknarflokknum hefur tvenns konar áhrif. Ef líkja má flokknum hingað vil við hús, sem var heimili Framsóknarmanna, hreinsar klofningurinn loftið innan dyra, þar sem farið hafa fram hjaðningavíg í slæmu andrúmsloftiþ
Nú verður loftað út og mestu slagsmálin hætta, en á móti kemur, að þeir sem ætla að flytja í annað hús, mun gera átökin að götuslagsmálum.
Og síðan eru enn aðrir sem hreinlega líst ekkert á blikuna og óvissuna sem þetta nýja ástand muni skapa og forða sér alfarið af vettvangi, að minnsta kosti í bili.
Guðfinna dregur framboðið til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.