22.11.2018 | 00:46
Fyrstur forseta í þessu sem öðru?
Síðan síðuhafi fór að fylgjast með stjórnmálum fyrir tæpum sjö áratugum minnist hann ekki þess að neinn forseti Bandaríkjanna hafi á eins áberandi hátt ráðist beint á dómsvaldið og Donald Trump hefur gert í embættistíð sinni, og nú fært sig enn meira upp á skaftið.
En hann er nú reyndar dýrkaður af mörgum fyrir að vera fyrstur forseta í svo mörgu.
Enn síður eru dæmi um að forseti Hæstaréttar BNA hafi séð ástæðu til að bregðast til varnar dómsvaldinu.
Við erum ekki með Obama-dómara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þannig að þú heldur að dómarar séu bara hlutlausir aðilar að reyna dæma eftir lögum landsins eða spilar pólitík eitthvað inn í hvernig þeir dæma?
Mofi, 22.11.2018 kl. 08:42
Allir dómarar eru pólitískir í eðlu sínu.
Ragnar þ.þóroddsson (IP-tala skráð) 22.11.2018 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.