3.1.2019 | 08:18
"Hundurinn var aðkomuhundur."
Árás refs á ungabarn í Alta á Finnmörku er grafalvarleg frétt út af fyrir sig, en rándýr eru jú alltaf rándýr.
Í lok fréttarinnar er talsvert gert úr því að refurinn hafi komið frá Rússlandi, en þangað eru nokkur hundruð kílómetrar.
Það minnir dálítið frétt í Degi á Akureyri á öldinni sem leið af hundi sem réðist á mann.
Fréttin endaði svona - "Hundurinn var aðkomuhundur."
Refur beit 10 mánaða barn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fjandann var þetta barn að flækjast þarna fyrir;
eins og síðuhafi segir svo réttilega:
"...en rándýr eru jú alltaf rándýr."
Húsari. (IP-tala skráð) 3.1.2019 kl. 09:26
Og ef eitthvað slæmt gerist fyrir "Norðan" er það oftast utanbæjar menn sem voru að verki!!
Sigurður I B Guðmundsson, 3.1.2019 kl. 10:45
Frá Akureyri er um það bil
ekki neins að sakna.
En þar er fagurt þangað til
þorpsbúarnir vakna.” - Flosi Ólafsson
KKK (IP-tala skráð) 3.1.2019 kl. 19:44
Nú væri fróðlegt að vita hvenær þetta með aðkomuhundinn var sagt í Degi. Mér hefur ekki tekist að finna það með leit á timarit.is.
Þorvaldur Sigurdsson (IP-tala skráð) 4.1.2019 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.