12.4.2019 | 00:37
Strik í eldsneytisreikninginn. Undirliggjandi orsök margs.
Eldsneytisverð er geysilega snar þáttur í flugi og hefur haft æ meiri áhrif síðustu árin.
Til þess að vera samkeppnisfær verða allir aðilar ao spila lúmskan áhættuleik.
Það sést þegar skoðaðar eru undirliggjandi ástæður áfalla af ýmsum toga.
1997 stóð Boeing á hátindi velgengni, sem hafði áunnist með því að komast hjá áföllum af völdum bilana með því að hafa alltaf sett öryggið ofar hagnaði.
Eitt atriði þess var, að á meðan keppinautar höfðu lent í áföllum, eins og Douglas DC-10 áföllunum, hafði Boing getað staðið við sitt, til dæmis loforð um afhendingu nýrra véla.
Að standa við slík loforð hefur mikil áhrif á traust framleiðandans.
Í fróðlegum þætti Aljazzera sjónvarpsstöðvarinnar hafa verið birt gögn, sem benda til þess að árið 1997 eftir samruna Boeing og McDonnel Douglas hafi orðið áherslubreyting með því að bjóða framleiðsluna meira út og leyfa undir sérstökum kringumstæðum að láta hraðann í sðlunni að hafa forgang fram yfir ítrasta öryggi.
Í þættinum voru leiddar líkur að því að þriggja ára töf á afhendingu Boeing 787 Dreamliner hafi verið partur af því að taka of bjartsýnislega áhættu af þessari pressu.
Og nú virðast svipuð vandræði vera komin varðandi 737 Max vélarnar.
Mjóþoturnar hafa þann kost fram yfir breiðþotur, að með þeim fæst ítrasta sparneytni með nýjum hreyflum sem henta þeim vel. Aðeins einn gangvegur er í þeim fyrir sex sæta sætaraðir, í stað tveggja gangvega fyrir sætaraðir, sem taka fleiri en sex farþega.
Boeing stóð frammi fyrir því að þurfa að endurhanna stélið á Max vélunum til þess stýrisfletirnir á því að það réðu við alveg nýja þyngdardreifingu og flugeiginleika.
Miðhluti bæði flugvéla og bíla eru dýrustu hlutar þessara tækja og því var ekki inni í myndinni að endurhanna miðhlutann allan á 737 til þess að koma fyrir hjólabúnaði með lengri hjólaleggjum, sem hefðu þurft aukið rými þegar hjól eru tekin upp og sett niður.
Nógu dýrar voru samt endurbætur sem gera varð á vængjunum til að ráða við stærri, kraftmeiri og plássfrekari hreyfla og breytta þyngdar- og afldreifingu vegna þeirra.
Þess vegna varð nýtt tölvustýrt stýrikerfi hannað, sem hefur valdið vandræðum.
Það er stórmál í hinni gríðarlegu hörðu samkeppni ef mörg hundruð vélar, sem áttu einmitt að mala gull í sparneytni, eru nú kyrrsettar.
Vélarnar, sem leysa þær af, eru dýrari í rekstri og eyðslufrekari og setja því slæmt strik í reikninginn.
Loftflæði- og þyngdar- og afldreifningar vandamál geta vafist fyrir reyndustu flugvélaframleiðendum, jafnvel framleiðendum lítilla flugvéla.
Sem dæmi má nefna Cessna 162 Skycatcher tveggja sæta vélina sem átti að leiða stór framför í kennsluflugi og koma í stað gömlu 152 kennsluvélanna.
Vélin átti að falla inn i svonefndan LSA fisflugvélaflokk, en þúsundir véla í þeim flokki hafa verið framleiddar í heiminum.
Eftir endurtekin slys, óhöpp og vandræði í reynsluflugi á 162 og sölu á aðeins nokkur hundruð stykkjum, gafst þessi framleiðandi vinsælustu og öruggustu smáflugvéla og kennsluflugvéla sögunnar upp og hætti við framleiðsluna á þessari vél.
Taka 757-200 á leigu og fella niður flug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góð samantekt Ómar
Halldór Jónsson, 12.4.2019 kl. 13:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.