18.6.2019 | 00:05
Refurinn, umdeildur og illa séður alla tíð.
Íslenski refurinn hefur veri[ umdeildur og notið ills umtals frá landnámi.
Illt umtal helgast af því að hann getur verið það sem kallað er dýrbítur, en sá eiginleiki hans er hins vegar ekki áunninn heldur áskapaður, því að dýrið flokkast sem rándýr.
En ef refurinn værir svo vinsamlegur að undanskilja sauðkindur og æðarfugla frá þeim dýrum, sem hann vill lifa á, væri umtalið um hann væntanlega allt annað en það er.
Á Norðurlöndum er úlfurinn í sama flokki og refurinn varðandi megna andúð manna á honum, og er það af svipaðri ástæðu; úlfurinn er svo óheppinn að vera skapaður sem rándýr af þeim sama Guði og kristnir menn tilbiðja sem algóðan.
Ótal tilbúnar eða sannar sögur af illu eðli úlfa og refa eru óendanlega margar orðnar í gegnum aldirnar.
Og eru allar á þá lund að þetta séu alveg sérstaklega illa innrættar óvættir.
Orð eins og refskapur og úlfur í sauðargæru, að ekki sé nú minnst á úlfinn, sem vildi éta ömmu Rauðhettu, eru dæmi um þetta.
Eftir að refir urðu friðaðir á Hornströndum var sett í gang mikil herferð gegn þessari friðun með þeim rökum, að refum myndi fjölga svo mikið að hann myndi útrýma öllu fuglalífi á þeim slóðum, og raunar helfur betur en það, því að þaðan myndu streyma refir út um allt land til þess að eyða öllu eðlilegu og góðu dýralífi.
Nú eru komnir nógu margir áratugir síðan friðunin hófst, að refurinn ætti að vera búinn að klára þessa útrýmingarherferð, en svo er hins vegar ekki.
Enda voru engir menn til að halda refnum í skefjum fyrir landnám Íslands, og því merkilegt að honum skyldi ekki takast á þeim 11 þúsund árum, sem hann hafði frið til eyðingarstarfs síns að eyða öllu lífi.
Því er ekki að neita að refurinn taki sinn toll í veiðum sínum, en hins vegar er til það lögmál í náttúrunni, að hún leiti sem betur fer oft jafnvægis sjálf á þessu sviði.
Áður en hvalveiðar hófust fyrir alvöru hér við land höfðu hvalir frítt spil til að eyða öllum fiski í tugi og hundruð þúsundir ára.
En tókst það ekki.
Æ algengari sjón í Heiðmörk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Áður en hvalveiðar hófust fyrir alvöru hér við land höfðu hvalir frítt spil til að eyða öllum fiski í tugi og hundruð þúsundir ára. En tókst það ekki....Og ekki er vitað hve mörgum tegundum þeim tókst að eyða. Rétt eins og ekki er vitað hve mörgum tegundum refir eyddu hér á landi fyrir landnám. Það er rangt mat að horfa á þau dýr sem eftir standa og segja að náttúran leiti jafnvægis og rándýrin eyði ekki tegundum. Mörg dæmi eru um útrýmingu tegunda vegna rándýra.
Vagn (IP-tala skráð) 18.6.2019 kl. 08:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.