24.3.2020 | 19:40
Löngu tímabært að tryggja flugsamgöngur við útlönd.
Í öllum löndum Evrópu eru aðstæður þannig, að margir varaflugvellir fyrir allar stærðir flugvéla eru hvarvetna í stuttri fjarlægð ef einn lokast.
Lokist völlur til dæmis í Belgíu, er til dæmis stutt að fljúga til annarra flugvalla í fimm nágrannalöndum.
En Ísland hefur algera sérstöðu, hvað þetta varðar. Keflavíkurflugvöllur ber ægishjálm yfir aðra íslenska flugvelli, þannig að flugvélar, sem þurfa þriggja kílómetra langar brautir, eru í 1300 kílómetra fjarlægð eða meira, vegna þess hvað eyjan okkar hvíta er langt frá öðrum löndum.
Varaflugvellir hér á landi fyrir flugvélar af millistærð, sem algengastar eru, eru aðeins þrír, í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum, og allir með sínum takmörkunum.
Oft kemur það upp í umræðunni að fjölga þurfi íslenskum varaflugvöllum, og eyða jafnvel morðfjár í nýjan flugvöll í Hvassahrauni, en það yrði óráð að eyða fé í slíkt, heldur er og hefur verið brýn nauðsyn á því að endurbæta vellina á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík.
Vegna þess hve umhverfis Akureyrarflugvöll eru há fjöll getur það takmarkað notagildi hans.
Á Egilsstöðum er flugbrautin full stutt og myndi það auka mjög gildi hans að lengja hana og bæta aðflugið og fráflugið við syðri enda vallarins.
Lenging austur-vestur brautarinnar í Reykjavík gæfi lang ódýrasta kostinn til þess að uppfylla þá nauðsyn að hafa tvo góða alþjóðaflugvelli við Faxaflóa.
Umbætur í millilandaflugi Íslendinga er ekkert einkamál ferðaþjónustunnar, þótt það út af fyrir sig sé mikilvægt atriði.
Rétt eins og ótryggar og ófullnægjandi samgöngur frá okkar afskekktu eyju við nágrannalöndin var ein höfuðástæðan fyrir því að við misstum sjálfstæðið 1262, eru öruggar, tryggar og góðar flugsamgöngur lykilatriði í því að halda bæði sjálfstæði og góðum kjörum við hér á landi.
Athugasemdir
Trump vill opna á flug frá okkur hið fyrsta. Af hverju viltu það ekki?
Halldór Jónsson, 24.3.2020 kl. 20:52
Ég hef ekkert sagt um flugbann við útlönd, enda snýst flugbann Trumps um það að að loka aðeins fyrir aðra leiðina, til Bandaríkjanna með útlendinga.
Flugbann hans hefur ekki hingað til náð til Bandaríkjamanna svo að mér sé kunnugt um það, heldur hafa þeir einir leyfi til að fljúga til Bandaríkjanna.
Evrópuríkin svöruðu þessu banni Trumps á flugi útlendinga til Bandaríkjanna með flugbanni af sinni hálfu.
Þessa dagana er útbreiðsla veirunnar þar að auki einna hröðust í Bandaríkjunum sjálfum, en slælegar skimanir þeirra valda upplýsingaskorti.
Er hvort eð er nokkuð hægt fyrir okkur að gera fyrr en sú lausn Trumps liggi fyrir eftir páska að lýsa yfir sigri yfir veikinni og opna fyrir allt flug og aðrar hamlanir?
Ómar Ragnarsson, 25.3.2020 kl. 01:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.