5.7.2020 | 11:11
"This is the place!" minnismerkið í Salt Lake City: Allir með.
Fyrir ofan borgina Salt Lake City í Utah ríki í Bandaríkjunum er risavaxið minnismerki um þann atburð þegar forystumaðurinn í 3000 kíómetra Paradísarferð Mormóna, þar af stór hluti sem gekk alla leið, stakk niður staf sínum þegar komið var yfir Klettafjöllin háu og miklu, og mælti þessi orð: "This is the place!"
Á minnismerkið er ekki bara að sjá forystumenn í Mormónatrúboðinu, heldur er þar líka að sjá aðra trúboða, veiðimenn, landkönnuði, indíánahöfðingja og þá aðra, sem stóðu að Utah-ríki og fjölmenningu þess.
Á sumum gröfum fjölmargra Íslendinga, sem hvíla í kirkjugarðinum í Spanish Fork fyrir sunnan Salt Lake City, má sjá heiðursmerki úr gulli með þessari áletrun: "Faith in every footstep"; trúartraust í hverju fótspori.
Ef hetjugarður um hina útvöldu þjóðhetjur verður að veruleika, væri vonandi hægt að draga lærdóm af því hvernig staðið var að málum í ríki Paradísarheimtar í Utah.
Vill stofna garð um þjóðhetjur Bandaríkjanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.