1.10.2020 | 00:02
Bagalegt að Biden kunni ekki vísu K.N.
Það var bagalegt í kappræðum Trumps og Bidens þegar sá síðarnefndi tafsaði. Í næstu kappræðum kæmi sér vel fyrir hann að hafa kynnt sér kveðskap Vestur-Íslendingsins K.N. þegar Trump gjammar mest fram í fyrir honum.
Þá lægi þessi vísa vel við:
Berja og skamma þyrfti þig
þrællinn grimmi, svei þér!
Hættu að gjamma og glefsa´í mig!
Go til hell and stay there!
Þetta sögðu Íslendingar um kappræðurnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta var stórslys í beinni útsendingu.
Samúð mín er hjá bandarískum kjósendum á þessum erfiðu tímum.
Guðmundur Ásgeirsson, 1.10.2020 kl. 01:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.