12.8.2021 | 00:36
Vel heppnaður þáttur hjá Páli í í kvöld.
Fyrirkomulag nýs umræðuþáttar um þjóðmál undir stjórn Páls Magnússonar tókst bara vel í kvöld og kaflaskiptingin liðkaði fyrir góðri útkomu.
Páll, sem er hokinn af fjölbreyttri reynslu að aftan og framan og allt um kring í pólitíkinni, virðist vera á heimavelli í þessu eftir að sloppið úr verunni hjá Goðmundi á Glæsivölllum svipað og Grímur Thomsen forðum, sem lýsti því með þessum orðum: "Kalinn á hjarta þaðan slapp ég."
Katrín sýndi vel lagni sína í umgengni við aðra, sem hefur skilað henni meira trausti í skoðanakönnunum en sést hefur síðan Steingrímur Hermannsson var "vinsæll og vissi´af því."
Heilbrigðisstefna Marteins Mosdals | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.